Enski boltinn

Carragher kvaddi með sigri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Carragher fékk heiðursskiptingu í síðari hálfleik og var ákaft fagnað á Anfield.
Carragher fékk heiðursskiptingu í síðari hálfleik og var ákaft fagnað á Anfield. Nordicphotos/Getty

Liverpool kvaddi einn sinn dáðasta son, Jamie Carragher, þegar liðið lagði QPR að velli 1-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Philippe Coutinho sá til þess að Liverpool gat fagnað sigri með marki á 23. mínútu. Áður hafði Brasilíumaðurinn í tvígang komist nærri því að skora en Coutinho hefur farið á kostum með Liverpool í undanförnum leikjum.

Jamie Carragher var skipt af velli í síðari hálfleik í 737. leik sínum fyrir Liverpool. Úrslitin breyttu engu fyrir liðin. Liverpool hafnar í 7. sæti en QPR var löngu fallið úr deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×