Erlent

Talibanar bjóða fangaskipti

Þorgils Jónsson skrifar
Bowe Bergdahl hefur verið í haldi talibana í rétt tæp fjögur ár. Þeir hafa nú boðist til að skipta á honum og fimm háttsettum talibönum sem eru í haldi í Guantanamo-fangabúðunum.
Bowe Bergdahl hefur verið í haldi talibana í rétt tæp fjögur ár. Þeir hafa nú boðist til að skipta á honum og fimm háttsettum talibönum sem eru í haldi í Guantanamo-fangabúðunum. Mynd/AP
Talibanar hafa gert Bandaríkjamönnum tilboð um að sleppa bandarískum hermanni úr haldi gegn því að fimm hátt settum liðsmönnum þeirra verði sleppt úr fangabúðunum í Guantanamo.

Hermaðurinn sem er í haldi talibana hinn 27 ára gamli Bowe Bergdahl, er sá eini sem talinn er vera enn í haldi talibana. Hann hvarf frá herbúðum í suðausturhluta Afganistan sumarið 2009 og er talið að hann sé í haldi í Pakistan.

Shaheen Suhail, talsmaður talibana, segir að Bergdahl sé við góða heilsu, eftir því sem hann komist næst.

Í augum talibana eru þessi fangaskipti skilyrði fyrir því að hefja friðarviðræður við Bandríkjamenn sem boðaðar voru fyrr í vikunni.

„Fyrst verður að sleppa föngunum,“ sagði Suhail, „þar yrði um skipti að ræða. Síðan, skref fyrir skref, munum við byggja upp traust milli aðila til að halda áfram.“

Talibanar opnuðu í vikunni sendiskrifstofu í Doha í Katar.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú staddur í Doha til að sækja ráðstefnu um ástandið í Sýrlandi, en mun að öllum líindum einnig eiga fund með talibönum. Bandaríkjamenn leggja mikið uppúr því að ná pólitískri sátt við talibana eftir næstum tólf ára stríð í Afganistan.

Hinar boðuðu viðræður milli talibana og Bandaríkjanna eru tvíhliða, en hafa hleypt illu blóði í Hamid Karzai, forseta Afganistans. Honum finnst framhjá sér gengið og hefur á móti aflýst viðræðum við Bandaríkin um framhald öryggissamstarfs eftir að hersveitir NATO yfirgefa landið í árslok 2014.

Talibanar hafa hins vegar gert ljóst að þeir vilji ræða beint við Bandaríkin.

„Fyrst munum við ræða við Bandaríkjamenn um þau málefni sem snerta þá og okkur,“ segir Suhail. „Framkvæmd þeirra mála er alfarið í höndum Bandaríkjanna. Við viljum að erlendar hersveitir hafi sig á brott frá Afganistan, því að fyrr mun stríðinu ekki ljúka.“

Fyrr í vikunni tóku afgönsk stjórnvöld við öllum öryggismálum í landinu, og þótti ástandið heyra til batnaðar.

Nú er hins vegar allt í loft upp á nýjan leik og bandaríks stjórnvöld vinna að því að lægja öldur á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×