Enski boltinn

Hárblásarinn hans Sir Alex fær alla forsíðu The Sun á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Forsíða The Sun á morgun
The Sun fjallar eins og aðrir fjölmiðlar í heiminum ítarlega um þá ákvörðun Sir Alex Ferguson að hætta sem knattspyrnustjóri Manchester United eftir þetta tímabil. Það er hinsvegar óhætt að segja að forsíða The Sun á morgun skeri sig úr.

Forsíða The Sun í fyrramálið hefur þegar vakið mikla athygli þrátt fyrir að blaðið sé enn í prentun en það er löngu orðið þekkt að menn á þessu blaði fara alltaf frumlegar leiðir þegar kemur að því að setja fram fréttir sínar.

Sir Alex á forsíðuna á morgun en það er þó aðeins lítil mynd af hinum 71 árs gamla stjóra United á forsíðunni. Sir Alex er þekktur fyrir að lesa yfir leikmönnum sínum og slíkum þrumuræðum hefur verið líkt við það að lenda í hárblásara.

Það er því hárblásarinn hans Sir Alex Ferguson sem fær heiðurskveðju á forsíðu The Sun á morgun. Þar sést hann kominn upp á snaga eftir 27 tímabila þjónustu við karlinn.

Sir Alex Ferguson vann alls 13 meistaratitla með lið Manchester United og lið undir hans stjórn (St. Mirren, Aberdeen og Manchester United) unnu alls 49 titla á hans frábæra stjóraferli.




Tengdar fréttir

Hver tekur við af Ferguson?

Þar sem Sir Alex Ferguson ætlar að stíga niður úr brúnni hjá Man. Utd eru menn eðlilega byrjaðir að velta því fyrir sér hver muni taka að sér hið erfiða hlutverk að fylla skarð Ferguson sem er að margra mati ómögulegt verkefni.

Gullkorn úr smiðju Sir Alex

Sir Alex Ferguson hefur verið óhræddur við að segja blaðamönnum skoðun sína í gegnum árin. Mörg gullkornin hafa fallið og margir fengið að heyra það.

Grét fyrir framan leikmennina

Það kom mörgum í opna skjöldu þegar Sir Alex Ferguson tilkynnti í morgun að hann myndi hætta að þjálfa liðið í lok tímabilsins.

Skiluðu seðlaveskinu til Sir Alex

"Það var fallega gert hjá konunni í búðinni að treysta okkur fyrir því að skila veskinu," segir Gunnlaugur Jónsson.

Sir Alex kveður United

Manchester United hefur staðfest að knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson muni láta af störfum í lok leiktíðar eftir 26 ára starf hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×