Sport

Kristján Helgason Íslandsmeistari fjórða árið í röð

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kristján mundar kjuðann
Kristján mundar kjuðann mynd/147.is
Kristjan Helgason varð í gær Íslandsmeistari í snóker 2014. Kristján lagði Bernharð Bernharðsson örugglega í úrslitum 9-1.

Þetta var fjórða árið í röð sem Kristján verður Íslandsmeistari en hann hefur alls landað titlinum ellefu sinnum.

Kristján og Bernharð keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumóti áhugamanna í Sofíu í Búlgaríu ásamt Tryggva Erlingssyni og Sigurði Kristjánssyni 1. til 12. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×