Skólahald hefst á mánudaginn Samúel Karl Ólason Stefán Árni Pálsson skrifar 4. apríl 2014 16:15
Samninganefndir ríkisins og framhaldsskólakennara skrifuðu undir samning um klukkan hálf fimm í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag. Skólahald mun því hefjast aftur eftir helgi. Verkfallið hófst á miðnætti þann 17. mars síðastliðinn og mun því hafa staðið yfir í þrjár vikur á mánudaginn. Samningurinn felur í sér 6,8 prósenta almenna launahækkun til 31. október 2016. Sú hækkun mun gerast í þremur þrepum. Hækkun um 2,8 prósent tekur gildi strax. Launin munu svo hækka um tvö prósent 1. janúar 2015 og aftur um tvö prósent 1. janúar 2016. Samningurinn snýr einnig að aukinni kennsluskyldu kennara og er meiri viðveru krafist af þeim. Þrjár hækkanir eru á tímabilinu vegna þeirra breytinga. Strax bætast við fjögur prósent vegna breytingana. Þann 1. ágúst 2014 bætast við fimm prósent og 1. janúar 2016 bætast við átta prósent. „Skrítið að þessu sé loks lokið,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir við athöfnina. „Við erum búin að sitja yfir þessu lon og don.“ „Þegar upp er staðið höfum við náð mjög merkum áfanga í umbótakjörum kennara.“ Þá þakkaði hún samninganefnd ríkissins yfir gott samstarf.Ólafur H. Sigurjónsson formaður félags stjórnenda í framhaldsskólum segir þetta mjög merkt skref í þróun menntunar á Íslandi. „Þessir samningar verða okkur til heilla til mjög langs tíma.“Vísir/SÁPVísir/SÁPVísir/SÁPAð sjálfsögðu var boðið upp á vöfflur að lokinni undirskrift.Vísir/SÁPVísir/SÁP
Mest lesið Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Erlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Erlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Innlent Fleiri fréttir Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Sjá meira