Innlent

Segir orðróm um kynferðisbrot á allra vörum

Hrafnhildur Ýr Rafnsdóttir er ein sex kvenna sem kærðu mann fyrir kynferðisbrot í byrjun árs 2013.
Hrafnhildur Ýr Rafnsdóttir er ein sex kvenna sem kærðu mann fyrir kynferðisbrot í byrjun árs 2013.
Í Íslandi í dag í kvöld er fjallað um mál sex kvenna sem í upphafi árs 2013 kærðu mann á Þingeyri fyrir kynferðisbrot sem eiga að hafa átt sér stað yfir langt tímabil.

Hrafnhildur Ýr Rafnsdóttir, ein kvennanna sem kærði, segist hafa verið barn að aldri þegar að maðurinn braut kynferðislega á henni.

Hún segir orðróminn um kynferðisbrot mannsins lengi hafa verið á vörum fólks en samfélagið í bænum hafi snúið blindu auga að gjörðum mannsins. Hrafnhildur segir alltaf rétta tímann til að segja frá, jafnvel þó að mál af þessum toga séu fyrnd.

Ekki missa af Íslandi í dag í kvöld hér á Vísi eða á Stöð 2 klukkan 18.55.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×