Lífið

„Kauptu þér hús með skemmtistað“

Bjarki Ármannsson skrifar
Miley Cyrus hefur marga fjöruna sopið í frægðarmálum.
Miley Cyrus hefur marga fjöruna sopið í frægðarmálum. Vísir/Samskeytt mynd
Ungstirnin Miley Cyrus og Justin Bieber hafa verið talsvert milli tannanna á fólki upp á síðkastið, þá sérstaklega sá síðarnefndi. Hinn 19 ára gamli Bieber hefur verið kærður fyrir líkamsárás í heimalandi sínu Kanada og fyrir að keyra undir áhrifum í Flórída.

Cyrus var gestur þáttastjórnandans ódauðlega Jay Leno í vikunni, og var þar beðin um að veita Bieber góð ráð. Hún sat ekki á svörum, en ráðleggingar hennar mætti þýða á íslensku nokkurn veginn svona:

„Þú átt sand af seðlum, borgaðu fólki pening fyrir að sjá til þess að þú lendir ekki í vandræðum og skemmtu þér heima fyrir.“

Þetta uppskar mikinn hlátur og fagnaðarlæti meðal áhorfenda. „Kauptu þér hús og komdu fyrir skemmtistað í því,“ bætti hin óborganlega Cyrus við.

Myndband af ummælum söngkonunnar má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×