Lífið

Stalst í meðferð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Selena Gomez, fyrrverandi kærasta poppprinsins Justin Bieber, skráði sig í meðferð á meðferðarstofnuninni Dawn at The Meadows í Arizona í Bandaríkjunum í laumi í byrjun janúar. 

Vandamál Selenu er ekki vímuefnanotkun heldur fór hún í meðferð til að ná áttum að sögn heimildarmanns tímaritsins Us Weekly.

Selena eyddi tveimur vikum á meðferðarstofnunni en hún aflýsti tónleikaröð í Ástralíu til að hugsa um sjálfa sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×