Sport

Ray Rice og unnustan slógust - voru bæði handtekin

Ray Rice skorar snertimark á nýliðnu tímabili í NFL-deildinni.
Ray Rice skorar snertimark á nýliðnu tímabili í NFL-deildinni. Vísir/Getty
Ray Rice, hlaupari Baltimore Ravens í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, var handtekinn ásamt unnustu sinni eftir uppákomu í spilavíti um helgina.

Rice og unnustan voru í spilavíti í Atlantic City í Bandaríkjunum þegar upp úr sauð á milli þeirra og tókst parið á.

Þau voru bæði handtekin og stóð í skýrslu lögreglunnar „að bæði hafi slegið hvort annað“ en hvorugt þeirra hlaut skaða af.

Þeim var sleppt skömmu síðar úr haldi en þurfa mæta fyrir dómstóla til að svara fyrir atvikið, samkvæmt skýrslu lögreglu.

Lögfræðingar hlauparans voru fljótir að gera lítið úr handtökunni og sögðu við fréttamenn vestanhafs að parið hefði ekki verið kært. Annars gátu þeir fá svör veitt.

Rice skrifaði undir fimm ára samning upp á 35 milljónir dollara við Baltimore Ravens árið 2012 en hann hefur aldrei spilað verr en á nýliðnu tímabili. Lífið leikur ekki alveg við hann þessa dagana.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×