Farþegaþota hvarf af radar 8. mars 2014 10:10 VÍSIR/AFP
Malasísk farþegaþota hvarf af radar í nótt á leiðinni frá Kúala Lúmpur til Peking. 239 farþegar voru um borð, þar á meðal tvö börn og tólf áhafnarmeðlimir. Vélin er á vegum Malaysian Airlines en í yfirlýsingu frá flugfélaginu segir að vélin hafi horfið af radar á sjöunda tímanum í gær, nokkrum klukkustundum eftir flugtak. Að sögn víetnamskra yfirvalda hvarf vélin nærri lofthelgi Víetnam en ekki er vitað nákvæmlega hvar hún hvarf en hún hafði ekki samband við kínversku flugumferðarstjórnina og fór ekki inn í kínverska lofthelgi. Talið er að vélin hafi steypst í hafið undan ströndum Víetnam og eru björgunarmenn nú að störfum þar. Hvorki tangur né tetur hefur fundist af vélinni að sögn samgönguráðherra Malasía en hann ræddi við fjölmiðla í nótt. Framkvæmdastjóri flugfélagsins sagði við sama tækifæri að allt kapp væri lagt á að ná í fjölskyldur þeirra sem voru um borð í vélinni. Fréttastofa Al Jazeera greinir frá því að vélin hafi lent á flugvellinum í Nanning í Kína. Flugmálayfirvöld í Kína fullyrða að þetta sé ekki rétt. Á flugvellinum í Peking, þar sem vélin átti að lenda seint í gærkvöld, er flugið merkt sem seinkun á upplýsingaskjám.
Mest lesið Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Innlent Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Erlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Erlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Fleiri fréttir Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Stofnandi World Wrestling Entertainment verður menntamálaráðherra Úkraínuforseti hvetur Vesturlönd til einbeittari stuðnings Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Sjá meira