Rússar sagðir ætla að innlima austurhluta Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 7. apríl 2014 19:48 Mótmælendur hafa dregið rússneska fána að húní opinberra bygginga í þremur borgum í Úkraínu. Vísir/AFP
Oleksandr Turchynov, starfandi forseti Úkraínu, sakaði Rússland í dag um að ætla að taka Úkraínu í sundur. Þá benti hann á að óeirðir í þremur borgum í austurhluta landsins endurspegluðu atburðarásina sem átti sér stað á Krímskaga, áður en svæðið var innlimað af Rússlandi. Frá þessu er sagt á vef CNN. Mótmælendur hliðhollir Rússlandi hafa tekið yfir opinberar byggingar, draga rússneska fána að húni og líst yfir nýjum stjórnvöldum í borgunum Donetsk, Luhansk og Kharkov. Í sjónvarpsávarpi sagði forsetinn að mótmælunum væri stýrt af leyniþjónustu Rússlands. „Við munum ekki leyfa þessu að gerast,“ sagði Turchynov. Arseniy Yatsenyuk, forsætisráðherra, sagði markmið mótmælenda vera að koma miklum óróa á í landinu, svo erlendir hermenn gætu komið yfir landamærin og hernumið hluta Úkraínu. Skilaboðin frá utanríkisráðuneyti Rússlands eru þau að landið fylgist náið með þróun mála í Úkraínu og stjórnvöld þar eigi að hætta að kenna Rússlandi um vandamál sín. Bandarískir embættismenn hafa beðið Vladimir Putin, forseta Rússlands, um að sverja af sér mótmælin í Úkraínu. Þá var bent á að frekari ígrip Rússa í landinu myndu kalla fram harðari viðskiptaþvinganir en nú hefur verið beitt. Fjölmiðlar í Rússlandi segja mótmælendur í Donetsk hafa boðað atkvæðagreiðslu þann 11. maí um hvort svæðið skuli verða hluti af Rússlandi. Óstaðfestar heimildir CNN segja að Jafnframt hafi forsprakkar mótmælanna beðið Putin um að senda hermenn á svæðið. Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt CNN um ástandið.
Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Erlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira