Innlent

Utanríkisráðherrar NATO ákveða að efla loftrýmisgæslu í Eystrasaltsríkjum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Gunnar Bragi ásamt utanríkisráðherrum Tyrklands, Króatíu, Albaníu, Bretlands og Danmerkur.
Gunnar Bragi ásamt utanríkisráðherrum Tyrklands, Króatíu, Albaníu, Bretlands og Danmerkur. mynd/nato
Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu stöðu öryggismála í Evrópu og á Norður-Atlantshafssvæðinu á fundum í Brussel í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Ráðherrarnir áréttuðu fordæmingu sína á aðgerðum Rússa og því sem talið er vera ólögmæt innlimun Krímskaga. Ennfremur veldur viðbúnaður og liðsafli Rússa við landamæri Úkraínu áhyggjum bandalagsríkja og hefur loftrýmisgæsla á vegum Atlantshafsbandalagsins í Eystrasaltsríkjunum því verið efld.

„Við ræddum þá alvarlegu stöðu sem hernaðaraðgerðir Rússa og innlimun Krímskaga skapar fyrir öryggi Evrópu”, sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. „Á fundinum fórum við yfir aðgerðir sem ætlað er að styðja við Úkraínu og önnur samstarfsríki okkar í Austur-Evrópu. Á vettvangi Atlandshafsbandalagsins þarf að endurhugsa samskiptin við Rússland og það verður skoðunarefni þar næstu vikurnar.“

Utanríkisráðherrarnir funduðu einnig með Andrii Deshchytsia, starfandi utanríkisráðherra í NATO-Úkraínunefndinni. Bandalagsríkin hétu því halda áfram að vinna með stjórnvöldum í Úkraínu að pólitískri og friðsamlegri lausn sem tæki mið af alþjóðalögum og alþjóðlega viðurkenndum landmærum landsins.

Þá var þess sérstaklega minnst á fundi utanríkisráðherranna að tólf ríki hafa gerst aðildarríki að bandalaginu á síðustu fimmtán árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×