Lífið samstarf

Virkar vel á liðverki

Þorbjörg er með liðagigt. henni finnst Regenovex gelið kæla og lina bólgur. Hún ber það á aum og viðkvæm svæði eins og hné, olnboga og úlnliði.
Þorbjörg er með liðagigt. henni finnst Regenovex gelið kæla og lina bólgur. Hún ber það á aum og viðkvæm svæði eins og hné, olnboga og úlnliði. MYND/STEFÁN
Regenovex er góður kostur fyrir fólk sem leitar náttúrulegra leiða til að meðhöndla liðverki og til að byggja upp og viðhalda heilbrigðum liðum. Þorbjörg Finnsdóttir er með liðagigt og hefur notað gelið með hléum í nokkur ár. Hún segir það kæla og lina bólgur.

Regenovex inniheldur einstaka samsetningu tveggja virkra náttúrulegra efna, Hýalúrónsýru og Bionovex-olíu. Hýalúrónsýran viðheldur heilbrigðum liðum og liðleika. Bionovex-olían hefur bólgueyðandi eiginleika. Regenovex-vörurnar má nota einar og sér eða samhliða bólgueyðandi lyfjum. Regenovex fæst bæði í gel- og perluformi. Perlurnar eru teknar inn en gelið er borið á aum og viðkvæm svæði.

Þorbjörg Finnsdóttir hefur notað Regenovex-gelið í nokkur ár. Hún var greind með liðagigt fyrir um tíu árum og finnur mest fyrir henni í hnjám, olnbogum og úlnliðum. „Ég fór að prófa gelið fyrir fjórum árum og fannst ég strax finna mun. Mér finnst það kæla og lina bólgur og þjáningar.“ Þorbjörg segist hafa notað gelið með hléum. „Þegar ég er mjög slæm finnst mér það verkjastillandi og ég finn verulegan mun.“

Þorbjörg hefur nær aldrei tekið inn lyfseðilsskyld lyf við gigtinni. „Ég prófaði það í nokkra daga en fékk strax hjartsláttarónot. Eins heyrði ég fréttir utan úr heimi um slæmar aukaverkanir og lét það hverfa. Ætli ég hafi ekki farið þetta svolítið á hörkunni. Nú er ég hins vegar að hugsa um að prófa perlurnar og vita hvort þær geri mér jafn gott og gelið,“ segir Þorbjörg.

Einstök samsetning

Hýalúrónsýra viðheldur heilbrigðum liðum og liðleika. Hýalúrónsýru er lykilefni í brjóski og liðvökvanum í liðamótum. Hýalúrónsýra er talin auka virkni liðvökvans sem virkar smyrjandi og höggdeyfandi á liðina. Með aldrinum gengur á þessar birgðir. Með því að taka inn Regenovex má endurhlaða birgðirnar.

Bionovex-olía hefur bólgueyðandi eiginleika. Þegar magn og gæði liðvökvans sem umlykur liðina er ekki nægjanlegt geta myndast bólgur og sársauki. Bionovex-olían er unnin úr grænkræklingi og er því náttúruleg. Bianovex-olían inniheldur einstaka omega-3 olíu sem finnst aðeins í þessari tegund grænkræklings og hefur sýnt bólgueyðandi eiginleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.