Tugir þúsunda fylgdu piltunum til grafar Samúel Karl Ólason skrifar 1. júlí 2014 17:45 Vísir/AP
Tugir þúsunda Ísraela fylgdu í dag þremur piltum sem fundust myrtir í gær til grafar á Vesturbakkanum. Þeim hafði verið rænt tveimur vikum áður og yfirvöld í Ísrael saka Hamas samtökin um morðið. Fjölmargir hafa kallað eftir hefndaraðgerðum gegn Hamas, en AP fréttaveitan segir loftárásir hafa verið gerðar á tugum staða þar sem meðlimir samtakana eru taldir koma saman. Þá skutu ísraelskir hermenn palestínskan 20 ára gamlan mann til bana nálægt bænum þar sem piltunum var rænt. Yfirvöld í Ísrael segja hann hafa kastað handsprengju að hermönnum, en fjölskylda hans segir hann hafa verið á leið heim til sín með egg. Hamas samtökin hafa lofað morðin en hafa hvorki neitað né staðfest að meðlimir þeirra hafi átt hlut að máli. Yfirvöld í Ísrael hafa ekki gefið upp miklar upplýsingar um ránið á piltunum, en fjölmiðlar þar í landi birtu í dag hljóðupptöku af því þegar einn piltanna hringdi í lögreglu eftir ránið. „Þeir rændu mér,“ heyrðist einn þeirra segja og svo er kallað á hann og honum sagt horfa niður. Upprunalega héldu starfsmenn neyðarlínunnar að um gabb væri að ræða svo leit tafðist um nokkrar klukkustundir.Vísir/AP
Mest lesið Óttast um örlög farþega eftir árekstur flugvélar og þyrlu í Washington Erlent Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð Erlent Starfsemin sé ekki tryggð miðað við núverandi framlög Innlent Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur Innlent Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Erlent UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Erlent Öllum heilsast vel eftir fæðingu í háloftunum Innlent Eldgosin í stærri kantinum verði þau við flekamótin Innlent Gengur í storm með slyddu eða snjókomu Veður Tafir á Reykjanesbraut og víða óvissustig Innlent Fleiri fréttir Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Óttast um örlög farþega eftir árekstur flugvélar og þyrlu í Washington Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Tekur formlega völd í Sýrlandi en heitir kosningum Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Draga minnisblað til baka eftir mikla óreiðu Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Tengja hrinu sprenginga í Svíþjóð við glæpasamtök Líf norsku stjórnarinnar hangir á bláþræði vegna fjórða orkupakkans Segir Selenskí ólögmætan og ófæran um að skrifa undir eitt né neitt Alþjóðastofnanir draga saman seglin vegna Trump Býður milljónum starfsmanna að hætta gegn átta mánaða biðlaunum Áttatíu og fimm prósent vilja ekki tilheyra Trump Segir Rússa hafa ætlað að ráða fleiri iðnaðarleiðtoga af dögum Segir Robert frænda sinn athyglissjúkt rándýr Mona Lisa fær sérherbergi Forsætisráðherra Serbíu segir af sér í kjölfar mótmæla Sökuð um að hafa pyntað dóttur sína fyrir fylgjendur og peninga Google breytir nafninu á Mexíkóflóa Segja átta látna af þeim 26 gíslum sem láta á lausa Trump enn iðinn við kolann: Beinir sjónum að hernum og alþjóðasamvinnu Svíar leggja hald á skip vegna skemmda á sæstreng Senda Trump skilaboð og auka viðbúnað við Grænland Þjóðaröryggisráðgjafi skildi gögnin sín ítrekað eftir á glámbekk Ein stærsta borg Austur-Kongó í höndum uppreisnarmanna Áttatíu ár frá frelsun Auschwitz: „Ég hverf aftur til Auschwitz á hverjum degi“ Lúkasjenka lýstur sigurvegari umdeildra forsetakosninga Sjá meira