IS-liðar að baki hryðjuverkaógninni í Noregi Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2014 09:10 Norska ríkisstjórnin og öryggislögreglan varaði við að raunveruleg hætta steðjaði að öryggi norska ríkisins á fréttamannafundi þann 24. júlí síðastliðinn. Vísir/AFP
Fjórir íslamistar á vegum IS-samtakanna leiddu til að norsk yfirvöld lýstu hækkuðu viðvörunarstig vegna aðsteðjandi hryðjuverkaógnar fyrr í sumar. Þetta hefur norska blaðið Dagbladet eftir heimildarmönnum sínum. Dagbladet hefur fengið það staðfest hverja um ræðir og að þeir komi ekki frá Miðausturlöndum. Kjósa þeir að nafngreina ekki mennina. Norska ríkisstjórnin og öryggislögreglan varaði við að raunveruleg hætta steðjaði að öryggi norska ríkisins á fréttamannafundi þann 24. júlí síðastliðinn og var lögregla með mikinn viðbúnað á opinberum stöðum næstu daga á eftir. Hinir fjórir grunuðu voru á leið til Noregs frá Aþenu um miðjan júlímánuð en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um ferðir þeirra. Hryðjuverkaógn steðji því í raun enn að landinu. Í fréttinni kemur fram að ekki sé vitað hvenær til hafi staðið að gera hryðjuverkaárás, en gögn liggi fyrir um að hún hafi átt að vera umfangsmikil og skapa „hræðslu á alþjóðavísu“. Til hafi staðið að ráðast á stórborg og að hún hafi jafnvel átt að vera gerð í suðurevrópsku landi. Norsk yfirvöld vinna nú með lögreglu í öðrum löndum í leit sinni að umræddum mönnum. Talsmenn norsku lögreglunnar og dómsmálaráðuneytisins hafa neitað því að tjá sig um frétt Dagbladet.
Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira