Segir alþjóðasamfélagið hafa brugðist of seint við Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 7. október 2014 19:07
Íslenskur hjúkrunarfræðingur, sem fer með yfirumsjón með þjálfun sjálfboðaliða fyrir Alþjóða Rauða krossinn, segir að alþjóðasamfélagið hafi brugðist of steint við faraldrinum banvæna. Magna Björk Ólafsdóttir starfaði í Síerra Leóne í ágúst og september, en er nú stödd í Genf þar sem hún hefur yfirumsjón með þjálfun þeirra sjálfboðaliða sem eru á leið til Vestur-Afríku á vegum Alþjóða Rauða krossinns til að sinna ebólusmituðum. Hún segir ástandið í Vestur-Afríkuríkjunum skelfilegt. „Það eru enn margir að smitast og margir að deyja. Heilu fjölskyldurnar eru dánar og í sumum tilfellum heilu þorpin. Það eru líka mikið af munaðarlausum börnum sem eiga engan að, svo ástandið er alls ekki gott“. Magna segir að faraldurinn hafi dreifst um á ógnarhraða og að alþjóðasamfélagið hefði þurft að grípa fyrr í taumana. „Það á eftir að taka marga mánuði ef ekki ár að komast yfir þennan farald. Það sem maður vonar er að það komi meiri aðstoð til Vestur- Afríku vegna þess að ef við ætlum að stoppa faraldinn þá þurfum við að stoppa hann þar. Manni lýst ekki vel á þetta, engan veginn,“ segir hún. Spænskur hjúkrunarfræðingur er nú smitaður af ebólu og er það fyrsta manneskjan sem smitast af sjúkdómnum utan Vestur-Afríku. Þá smitaðist norsk kona í vikunni, en hún sinnti hjálparstörfum á vegum Lækna án landamæra í Síerra Leóne. Konan var flutt á sjúkrahús í Osló í dag, en hún er fyrsti Norðurlandabúinn sem smitast af veirunni.
Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Tvær á toppnum Innlent Annarri ákærunni formlega vísað frá Erlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Innlent Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Fleiri fréttir Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Sjá meira