Hamilton varð annar á fyrri æfingunni, Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji og Valtteri Bottas á Williams varð fjórði.
Helstu fréttir æfingarinnar voru þær að Caterham liðið mætti með mikið endurbættan framvæng sem leiddi til þess að bæði Marcus Ericsson og Roberto Merhi á Caterham voru fljótari en Marussia ökumenninrnir. Max Verstappen yngsti ökumaður á Formúlu 1 keppnishelgi frá upphafi varð 12. og ók 22 hringi. Hann hefur eflaust náð í gríðarlega mikilvæga reynslu og hann komst í gegnum æfinguna án meiriháttar óhappa.
Rosberg varð annar á seinni æfingu dagsins, Bottas þriðji og Jenson Button á McLaren fjórði. Tíundi hraðasti maður æfingarinnar, Daniel Ricciardo klessti Red Bull bíl sinn í síðustu hægri beygjunni á Suzuka brautinni. Rauðum flöggum var þá veifað og æfingin stöðvuð tímabundið.
Jean-Eric Vergne lenti í því að Toro Rosso bíllinn bilaði, æfingin var aftur stöðvuð í kjölfarið. Esteban Gutierrez missti stjórn á Sauber bíl sínum sem endaði á varnarvegg. Hetja heimamanna, Kamui Kobayashi á Caterham lenti einnig í því að klessa á eftir einungis fjóra hringi.
Tímatakan fyrir japanska kappaksturinn fer fram í fyrramálið og hefst bein útsending klukkann 4:50 á Stöð 2 Sport. Útsending frá keppninni hefst svo klukkan 5:30 á sunnudagsmorgun.

Heitasta umræðan í Formúlu 1 heimum í dag er sú hvar Alonso ekur á næsta tímabili. Engin leynd hefur verið yfir því að Alonso er ekki ánægður með gang mála hjá Ferrari. Spánverjanum þykir ganga of hægt að koma bílnum í samkeppnishæft form.
Hinn 33 ára ökumaður hefur nú verið hjá Ferrari í fimm ár. Honum hefur ekki enn orðið ágengt um að ná í sinn þriðja heimsmeistaratitil, sem hann þráir svo heitt. Ferrari segir nú að ólíklegt sé að liðið nái að vinna titla fyrr en 2017, þegar Marco Mattiacci hefur lokið endurskipulaggningu liðsins.
Talið er nánast öruggt að Alonso ætli sér að yfirgefa liðið þegar tímabilið er búið. Þó er endanleg ákveöðrun um slíkt í höndum Ferrari. Alonso hefur sjálfur sagt það og benti á að núverandi samningur hans nái til 2016.
Enginn samningur er kominn á við McLaren en þangað langar Alonso ef orðrómurinn er réttur. Næstu vikur munu leiða í ljós hvernig málið endar. Mikil spenna er að myndast á ökumanns markaðinum og forvitnilegt verður að sjá hver endar hvar.