„Niðurskurðurinn hefur orðið til þess að ég sá ekki lengur mögulegt að ná markmiðum mínum á íþróttadeild RÚV,“ segir Kristín Harpa Hálfdánardóttir, fyrrum yfirmaður á íþróttadeild RÚV. Kristín hefur gegnt stöðu yfirmanns íþróttadeildar undanfarin fimm ár en nú hefur Einar Örn Jónsson tekið við stöðu yfirmanns.
Eins og DV greindi fyrst frá í desember síðastliðnum býr Kristín í húsi í eigu Ríkisútvarpsins á Vatnsendahæð. Í samtali við Vísi í desember sagði Kristín að hún væri staðarhaldi í húsinu en enginn húsvörður hefði fengist til að vera þar.
Þrátt fyrir að Kristín hafi sagt upp á RÚV mun hún búa áfram í húsinu enn sem komið er. Hún segir við Vísi að hún hafi verið beðin um að vera þar áfram en óvíst sé þó hve lengi.

Óhætt er að segja að ansi fámennt sé á deildinni þar sem sjö íþróttafréttamenn auk Kristínar voru í fullu starfi fyrir tíu mánuðum. Íþróttafréttamennirnir Adolf Ingi Erlingsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson voru á meðal þeirra fastráðnu starfsmanna RÚV sem misstu vinnuna í fjöldauppsögn í lok nóvember í fyrra. Edda Sif Pálsdóttir missti einnig vinnuna en hún hafði verið í stóru hlutverki á deildinni þrátt fyrir að vera ekki fastur starfsmaður. Adolf Ingi lýsti í opinskáu viðtali í Fréttablaðinu hvernig að hans uppsögn hafði verið staðið og honum vísvitandi haldið af skjánum í nokkur ár.
Haukur Harðarson stendur nú vaktina með nýfæddu barni sínu sem fæddist nokkrum vikum fyrir tímann en fyrir lá að hann færi í fæðingarorlof þegar barnið fæddist. Sömuleiðis er Benedikt Grétarsson í fæðingarorlofi en óljóst er hvað tekur við hjá honum þegar orlofinu lýkur um miðjan október. Eftir standa Einar Örn og Hans Steinar.

Í kjölfar niðurskurðarins fyrir tíu mánuðum hætti íþróttadeildin framleiðslu sjónvarpsþátta á borð við 360 gráður og Íslenski boltinn. Undanfarið ár hefur engu að síður verið stórt hjá deildinni þar sem EM í handbolta, Vetrarólympíuleikarnir, Vetrarólympíumótið og HM í knattspyrnu standa upp úr. Þá var úrslitakeppin í Olís-deildum karla og kvenna eins löng og hún gerist með tilheyrandi fjölda beinna útsendinga.
„Okkur tókst að klára öll þessi verkefni vegna þess að við erum með ótrúlegt starfsfólk sem hefur unnið kraftaverk í að framleiða allt þetta efni með ekki meiri mannskap,“ segir Kristín. Íþróttafréttamennirnir á RÚV hafa samkvæmt heimildum Vísis unnið mikla yfirvinnu til þess að láta dæmið ganga upp. Velta má fyrir sér hversu mikill sparnaður í kostnaði fylgir því að vera með starfsmenn í stöðugri yfirvinnu.
Ekki liggur fyrir hvernig starfinu á íþróttadeild RÚV verði framhaldið. Einar Örn hefur tekið við hlutverki Kristínar svo ætla má að hans hlutverk sem íþróttafréttamaður verði minna þó hann gefi vafalítið kost á sér áfram í lýsingar og önnur verkefni.

Ljóst er að fjárhagsstaða RÚV er afar erfið en fram kom í gær að RÚV hafi ekki átt fyrir greiðslu af skuldabréfi sem var á gjalddaga í gær. Semja þurfti um frest á gjalddaga um þrjá mánuði. Félagið er yfirskuldsett og nema skuldirnar 5,5 milljörðum króna.
Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri sagði í tilkynningu frá RÚV að félagið væri augljóslega ekki búið að ná að losa sig við þann fortíðarvanda sem það hafi lengi glímt við.
„Nú liggur fyrir nokkuð skýr mynd af stöðu RÚV og ég bind vonir við að menn vinni sameiginlega að því að treysta grundvöll RÚV og þannig skapa viðundandi aðstæður fyrir Ríkisútvarpið til að sinna þeim mikilvægu verkefnum sem af því er vænst í lögum – og ekki síður af þjóðinni,“ sagði Magnús Geir.
Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV, segir í Fréttablaðinu í dag vera bjartsýnn á að RÚV muni geta greitt skuldina.
„RÚV er náttúrulega með tekjur allan ársins hring, frá auglýsingasölu og öðru, auk þess sem það fær greiðslu frá ríkinu sem innheimtir útvarpsgjaldið. En þetta sýnir bara þá þröngu stöðu sem RÚV er í, það má ekkert út af bregða.“