Innlent

Drónar mynduðu gjörning UN Women

Samúel Karl Ólason skrifar
Um tvö hundruð manns tóku þátt í Skínöldu.
Um tvö hundruð manns tóku þátt í Skínöldu. Skjáskot
Um tvö hundruð manns tóku þátt í gjörningi Ragnheiðar Hörpu Leifsdóttur, sem heitir Skínalda, á Klambratúni á þriðjudaginn. Verkið vann hún fyrir UN Women sem hefur í rúma viku vakið athygli á mikilvægi þess að konur um allan heim séu öruggar á götum úti.

Gjörningurinn hefur nú öðlast annað líf á internetinu með hjálpa dróna sem tóku hann upp úr lofti.

„Athöfnin var táknræn og falleg að mörgu leyti. Kynferðislegt áreitni og ofbeldi er hnattrænt vandamál sem við verðum að uppræta um heim allan. Hugarfarsbreyting meðal karlmanna er frumforsenda þess að kynferðisofbeldi linni en UN Women styrkir einnig einfaldar og ódýrar tæknilegar lausnir til að auka öryggi kvenna eins og að lýsa upp götur, stræti og biðskýli í fátækustu borgum heims,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi í tilkynningu.

„Því var einstaklega fallegt að sjá Íslendinga standa saman og lýsa upp Klambratún á þessum degi,“ segir hún ennfremur.

Gjörningurinn fór fram í kjölfar þess að Reykjavíkurborg skrifaði undir samning við UN Women um að höfuðborgin yrði örugg borg. Átak samtakanna hefur nú staðið yfir frá því 19. nóvember.

Ragnheiður Harpa er ánægð með þátttökuna í gjörninginum.

„Ég vissi ekkert við hverju væri að búast en er rosalega þakklát fyrir hve margir komu. Af því að þetta voru svo margir varð formið svo einstakt.“

Verkið Skínalda varð til eftir hugarflugsfund UN Women og listakonunnar og segir hún hafstraumakort og storma undirliggjandi í hugmyndinni. „Einn svona spírall hefur bein áhrif á vind og aðra spírala. Þeir hreyfast þvert á landamæri. Þeir virða engin höft og líta á heiminn sem heild. Vonandi lýsir þessi áfram í huga þeirra sem voru með og þeirra sem sjá myndbandið,“ segir Ragnheiður.

Síminn vann myndbandið í samvinnu við Tjarnagötuna, en Síminn og Reykjavíkurborg styrkja átak UN Women um öruggar borgir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×