Menning

Notaleg menningarstund með heitu súkkulaði og piparkökum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Finnur Arnar á að baki langan og fjölbreyttan feril á vettvangi íslenskra sjónlista.
Finnur Arnar á að baki langan og fjölbreyttan feril á vettvangi íslenskra sjónlista.
Næstkomandi laugardag, 13. desember kl. 14.00, tekur Finnur Arnar á móti gestum, í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum, og fjallar um sýningu sína FERÐ.

Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem haldin er sérstök sýning á vídeólist í húsakynnum safnsins.

Finnur Arnar á að baki langan og fjölbreyttan feril á vettvangi íslenskra sjónlista. Myndbandslistaverk eftir hann hafa verið sett upp á helstu sýningarstöðum landsins, ein sér, eða í samfloti við verk unnin í aðra miðla.

Finnur Arnar er einnig afkastamikill hönnuður sviðsmynda fyrir leikhús. Loks hefur listamaðurinn í seinni tíð haslað sér völl sem sýningarstjóri, en sýningarstjórn hans hefur framar öðru hverfst um „Skúrinn“ svokallaða. „Skúrinn“ er gamall og lúinn vinnuskúr sem fjöldi málsmetandi listamanna úr mörgum listgreinum hefur sýnt í og umbreytt með ýmsum hætti, nú síðast Ragnar Kjartansson.

Meðal annars hafa listamennirnir flutt hann með sér um landið. Upprunalega mun „Skúrinn“ þó hafa staðið á Suðurnesjum.

Fram kemur í tilkynningu frá Reykjanesbæ að allir séu hjartanlega velkomnir.

Boðið verður upp á heitt súkkulaði og piparkökur í tilefni aðventunnar, svo tilvalið er að stinga sér inn úr jólaamstrinu og eiga góða menningarstund.

Sýningin stendur til 21. desember.

Safnið er opið virka daga 12-17 og um helgar 13-17.

Aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×