Erlent

Átta skotnir til bana í Kanada

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
mynd/skjáskot
Átta voru skotnir til bana í Edmonton í Kanada á mánudag. Tvö börn yngri en tíu ára eru þar á meðal. Árásarmaðurinn svipti sig lífi og fannst látinn í gærmorgun.

Maðurinn myrti fyrst konu á fertugsaldri áður en hann fór yfir í annað hús þar sem hann myrti sjö aðra, tvo karlmenn og tvö börn. Árásarmaðurinn er sagður hafa glímt við mikið þunglyndi og nær sakaferill hans allt aftur til ársins 1987. Fjöldamorðin eru þau allra verstu á þessum slóðum í fimmtíu ár, en lögregla telur þau hafa verið skipulögð og rekur þau til öfgafullra sambandserja. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×