Erlent

Neyðarboð frá ferju með 700 manns um borð

Atli Ísleifsson skrifar
Skipið Blue Sky M siglir undir moldóvskum fána.
Skipið Blue Sky M siglir undir moldóvskum fána. Mynd/MarineTraffic
Neyðarboð hefur borist frá flutningaskipi undan strönd grísku eyjarinnar Korfú vegna gruns um að vopnaðir menn séu um borð. Talið er að nokkur hundruð ólöglegra innflytjenda séu um borð í skipinu.

Talsmenn grískra yfirvalda staðfesta að neyðarboð hafi borist frá skipinu Blue Sky M sem siglir undir moldóvskum fána.

Í frétt Reuters segir að þyrlur og bátar grísku landhelgisgæslunnar séu á leið á staðinn.

Gríska sjónvarpsstöðin SKAI segir að allt að 700 manns séu um borð í skipinu, þó að aðrar heimildir segja 400 manns vera um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×