Innlent

Ómakleg gagnrýni þingnefndar og ósæmandi fullyrðingar Skálholtsvina

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Staðsetning Þorláksbúðar við hlið Skálholtskirkju og sögulegt gildi búðarinnar er umdeilt.
Staðsetning Þorláksbúðar við hlið Skálholtskirkju og sögulegt gildi búðarinnar er umdeilt. Fréttablaðið/Vilhelm
„Ítrekað skal að engar vísbendingar eru um annað en að framlög þessi hafi verið notuð í þágu byggingarinnar,“ segir í greinargerð Ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um notkun á skattfé sem runnið hefur til uppbyggingar Þorláksbúðar í Skálholti.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvatti í mars í fyrra Ríkisendurskoðun til að „ljúka því verki að upplýsa um hvernig skattfé sem runnið“ hefði til Þorláksbúðarfélagsins hefði verið varið. Árni Johnsen hefur verið aðalforsvarsmaður félagsins.



Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.
Nú segir Ríkisendurskoðun fullyrðingu þingnefndarinnar, um að Ríkisendurskoðun hafi í bréfi til forsætisnefndar Alþingis í júní 2012 ekki lokið við að upplýsa hvernig skattfé sem rann til Þorláksbúðar hafi verið varið, bæði ranga og ómaklega. „Bréfið upplýsti einmitt um hvert fjármunirnir hefðu runnið,“ segir Ríkisendurskoðun.





Eiður Guðnason, forsvarsmaður áhugamanna um velferð Skálholtsstaðar.
Þá segir Ríkisendurskoðun að tilefni gagnrýni þingnefndarinnar á starf Ríkisendurskoðunar sé fyrst og fremst fullyrðingar svokallaðra áhugamanna um velferð Skálholtsstaðar í bréfi til nefndarinnar. Í þeim hópi voru Eiður Guðnason, Vilhjálmur Bjarnason, Ormar Þór Guðmundsson og Jón Hákon Magnússon, sem nú er látinn. Ríkisendurskoðun segir engan þeirra hafa haft samband til að afla gagna eða renna stoðum undir þessar fullyrðingar.



„Fullyrðing bréfritara um að ekki hafi farið fram nein athugun á fylgiskjölum í bókhaldi félagsins á sér enga stoð í raunveruleikanum og er bréfriturum ekki sæmandi. Staðreyndin er einfaldlega sú að sá starfsmaður Ríkisendurskoðunar, sem annaðist athugun á fjárreiðum félagsins, skoðaði hvert einasta fylgiskjal í bókhaldi þess sem og yfirlit bankareikninga,“ segir Ríkisendurskoðun.



Árni Johnsen, forsvarsmaður Þorláksbúðarfélagsins.


Að sögn Ríkisendurskoðunar er Þorláksbúðarfélagið skilgreint sem félagasamtök og að engu leyti í eigu eða undir stjórn ríkisins eða annars opinbers aðila. Engu að síður hafi starfsmaður Ríkisendurskoðunar fengið að skoða hvert einasta fylgiskjal í bókhaldi Þorláksbúðarfélagsins og yfirlit bankareikninga. „Ekkert sérstakt þótti stinga í augu auk þess sem allt stemmdi,“ segir Ríkisendurskoðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×