Ancelotti: Myndi aldrei þjálfa Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. október 2014 15:00 Vísir/Getty
Ítalinn Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, segir að það kæmi aldrei til greina hjá sér að taka að sér þjálfun Barcelona. Liðin mætast í risaslag helgarinnar í spænsku úrvalsdeildinni, El Clasico. Aðeins tveir menn hafa stýrt báðum liðum - Radomir Antic og Enrique Fernandez. En Ancelotti segir að hann beri of mikla virðingu fyrir sögu þessara tveggja liða að hann geti svikið lit. „Nú þegar ég hef þjálfað Real Madrid get ég aldrei starfað fyrir Barcelona,“ sagði Ancelotti við fjölmiðla á Spáni. „Ég verð að bera virðingu fyrir minni sögu og sögu þeirra félaga þar sem ég hef starfað.“ Hann var einnig spurður að því hvort hann gæti ímyndað sér að starfa jafn lengi fyrir Real Madrid og Sir Alex Ferguson gerði fyrir Manchester United. „Það er óhugsandi að ég verði í 24 ár hjá félaginu en ég vil gjarnan starfa hjá Real Madrid út minn starfsferil.“ Leikur liðanna á morgun hefst klukkan 16.00 á morgun og verður vitanlega sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Ancelotti segist bera virðingu fyrir liði Luis Enrique. „Ég horfði á leik liðsins [gegn Ajax] í Meistaradeildinni í vikunni og eins og alltaf reyni ég að finna veikleika í þeim liðum sem ég horfi á. En lukkan var ekki með mér í þetta skiptið - ég fann ekki marga galla.“
Spænski boltinn Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Ísak hættur með ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Sjá meira