Innlent

Breytingarnar vanhugsaðar

Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar
Hækkun matarskattsins verður án efa eitt af stóru málunum á Alþingi. Vísir/Stefán
Hækkun matarskattsins verður án efa eitt af stóru málunum á Alþingi. Vísir/Stefán Vísir/stefán
 „Ég hef velt því fyrir mér hvort ríkisstjórnin sé ekki að setja á svið leikrit. Það er mjög sérkennilegt þegar annar stjórnarflokkurinn setur almennan fyrirvara við fjárlagafrumvarpið,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.

Þingmenn Framsóknarflokksins hafa síðustu daga lýst miklum efasemdum yfir hækkun á virðisaukaskatti á mat úr sjö í tólf í prósent. Auk þess hefur forsætisráðherra lýst þeirri skoðun sinni að hægt sé að endurskoða fjárlagafrumvarpið.

Flestir þingmanna Sjálfstæðisflokksins styðja hins vegar breytinguna.



„Tekjuöflunarfrumvarpið gengur lengra, þar er gert ráð fyrir að matarskatturinn hækki í tólf prósent en í fjárlagafrumvarpinu er gengið út frá því að hann verði 11 prósent. Þetta gefur sögusögnum um að það sé verið að setja á svið leikrit byr undir báða vængi. Þetta verði svo dregið til baka,“ segir Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.

Hann segist þó varla trúa því fyrr en hann taki á að þannig sé í pottinn búið.

„Á maður ekki að ætla að ríkisstjórnin meini það að hún vilji hækka matarskattinn?“ segir Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, og bætir við að hann telji málið vera vanhugsað frá upphafi.

„Stjórnin sagðist ætla að einfalda virðisaukaskattskerfið. Það er hins vegar engin einföldun í þessu. Þrepin eru jafnmörg og þau voru og það er ein undanþága fyrir ferðaþjónustuna. Fjármálaráðherra segir að það verði ekki frekari breytingar,“ segir hann og bætir við að Björt framtíð styðji ekki hækkun á matarskatti.

„Á sama tíma og auðlegðarskattur upp á 10 milljarða er felldur niður og veiðigjöldin lækkuð enn meira er farið í skattahækkanir á almenning í landinu,“ segir Katrín og telur þetta ranga forgangsröðun.

„Mér finnst ótrúlegt, einmitt þegar við erum komin út úr kreppunni og fólk er búið að leggja mikið á sig í mörg ár, þá sé komið inn með ellefu milljarða hækkun á helstu lífsnauðsynjar. Þetta er stærsta einstaka skattahækkunin á almenning frá hruni,“ segir Helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×