Spænsku stelpurnar reiðar eftir leik: Þetta er skandall Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2014 08:15 Heidi Loeke í norska liðinu og Macarena Aguilar í því spænska með verðlaunapeninga sína eftir leikinn. Vísir/AP
Spænsku landsliðskonurnar voru allt annað en sáttar í viðtölum við fjölmiðla eftir tapið á móti Noregi í gær í úrslitaleik Evrópukeppni kvenna í handbolta. Spænska liðið náði mest fimm marka forskoti í leiknum en missti leikinn frá sér í seinni hálfleiknum. „Þetta er skandall," sagði Nerea Pena í viðtali við Dagbladet í Noregi en hún skoraði 10 mörk úr 14 skotum í leiknum. „Það féll allt með norska liðinu í þessum leik og dómarnir gerðu margoft augljós mistök. Það var bara svindlað á okkur í kvöld," sagði Pena allt annað en sátt með þær frönsku Charlotte Bonaventura og Julie Bonaventura sem dæmdu úrslitaleikinn. „Dómarnir fóru illa með okkur í seinni hálfleiknum. Við hefðum unnið þennan leik með aðeins meiri heppni og ef að dómararnir hefðu sinn sínu starfi betur. Við töpuðum ekki útaf dómurum en við fengum ekkert frá þeim," sagði Nerea Pena. Norska liðið var 10-12 undir í hálfleik en vann leikinn á endanum 28-25. Spænska liðið fékk einni brottvísun fleiri en þær norsku en alls fengu þær spænsku tíu víti í leiknum á móti sjö vítum norsku stelpnanna.Spænska liðið fagnaði silfurverðlaunum sínum eftir leikinn.Vísir/AP
Handbolti Tengdar fréttir Svíþjóð tók bronsið Svíþjóð vann Svartfjallaland í leiknum um þriðja sætið á Evrópumótinu í handbolta sem fram fer í Ungverjalandi og Króatíu, 25-23. 21. desember 2014 16:13 Þórir Evrópumeistari með Noreg Frábær árangur Þóris með Noreg heldur áfram. 21. desember 2014 18:38 Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Ísak hættur með ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Sjá meira
Svíþjóð tók bronsið Svíþjóð vann Svartfjallaland í leiknum um þriðja sætið á Evrópumótinu í handbolta sem fram fer í Ungverjalandi og Króatíu, 25-23. 21. desember 2014 16:13