David Gandy, Benedict Cumberbatch og Eddie Redmayne.vísir/getty
Val á best klæddu mönnunum var heldur betur erfitt og komu fjölmargir til greina, enda er listinn alls ekki tæmandi.
Þessir stóðu upp úr á árinu, enda hver öðrum glæsilegri.
Draumaprins okkar allra, Benedict Cumberbatch, óaðfinnanlegur í flauelsfötum.Jared Leto kom svo sannarlega, sá og sigraði á Óskarsverðlaununum, var óaðfinnanlega klæddur og fór heim með gullstyttu.Breska fyrirsætan David Gandy er alltaf flottur.Fyrrverandi fótboltastjarnan David Beckham var sérstaklega smart þetta árið.Burberry-fyrirsætan og leikarinn Eddie Redmayne sló vart feilnótu í fatavali á árinu.Harry Styles úr One Direction var glæsilegur í röndóttum fötum frá Lanvin úr sumarlínunni fyrir árið 2015.Íslandsvinurinn Ryan Gosling sló öllum öðrum við á Cannes-kvikmyndahátíðinni.Brooklyn, sonur Victoriu og Davids Beckham, hefur greinilega erft tískuvitið frá foreldrum sínum.