Fæðingarheimili Hitlers enn til vandræða Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2014 12:43 Húsið stendur við Salzburger Vorstadt 15 í landamærabænum Braunau. Vísir/AP
Húsið í austurríska bænum Braunau am Inn þar sem Adolf Hitler fæddist árið 1889 hefur nú staðið autt í þrjú ár og vita fulltrúar yfirvalda ekki hvað skuli til bragðs að taka. Húsið hefur síðastliðin ár verið leigt út af innanríkisráðuneyti Austurríkis til að koma í veg fyrir að nýnasistar safnist þar saman. Margir vilja jafna húsið við jörðu og aðrir opna þar safn. Húsið stendur við Salzburger Vorstadt 15 í landamærabænum Braunau. Fjölskylda Hitlers tók nokkur herbergi á efri hæð hússins á leigu í nokkrar vikur árið 1889, einmitt á þeim tíma þegar Hitler kom í heiminn. Eftir seinna stríð var húsið notað sem bókasafn, síðar bankaskrifstofur og loks heilsugæsla en síðustu ár hefur húsið staðið autt. Kona að nafni Gelinde Pommer á fasteignina en hún neitar að gera nauðsynlegar endurbætur á húsinu sem var upphaflega reist á sautjándu öld. Hún hefur leigt innanríkisráðuneyti Austurríkis eignina frá árinu 1972. Síðustu þrjú árin hefur húsið staðið autt, en fjölmörgum hugmyndum hefur verið varpað fram um hvernig megi nýta það. Lagt hefur verið til að breyta því í íbúðahús, nýta til fullorðinskennslu eða innrétta safn eða miðstöð til að minnast fórnarlamba þriðja ríkisins. Árið 2012 bauðst rússneski stjórnmálamaðurinn Frants Klintsevich til að kaupa húsið og sprengja það í sundur. Faðir Hitlers, Alois, starfaði sem tollvörður í bænum á þeim tíma þegar Hitler fæddist. Fjölskyldan flutti frá Braunau þegar Adolf var þriggja ára gamall, en bærinn stendur við landamæri Austurríkis og Þýskalands.
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Fleiri fréttir Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Sjá meira