Vill svör frá ráðherra um hvalabjór Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 29. janúar 2014 09:55 Mörður Árnason (t.v.) vill svör frá Sigurði Inga um bjórinn. vísir/anton/valli
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði fram skriflega fyrirspurn til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á Alþingi í gær þar sem hann óskar eftir svörum vegna hvalabjórs brugghússins Steðja.Sala og dreifing bjórsins var heimiluð af Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, en hann var áður bannaður af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands á þeim forsendum að hvalamjöl sem notað er við framleiðslu bjórsins þótti ekki uppfylla skilyrði laga um matvæli. Mörður spyr hvort starfsleyfi Hvals hf. nái til framleiðslu hvalamjöls til að nota í matvæli og til framleiðslu kryddvöru. Einnig vill hann fá svör við því hvers vegna atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið telur, samkvæmt bréfi til Brugghússins Steðja ehf. 24. janúar, að lagagrundvöllur sé „óviss“ við ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 13. janúar um bjórinn. Þá spyr Mörður um það hvaða umsagnir hafi borist ráðuneytinu um málið frá undirstofnunum þess eða öðrum áður en ráðherra ákvað að fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Að lokum spyr hann hvort ráðherra eða ráðuneytisstarfsmaður hafi beðið Heilbrigðiseftirlit Vesturlands eða heilbrigðisnefnd Vesturlands að afturkalla ákvörðunina um hvalamjölið áður en ráðherra ákvað að fresta réttaráhrifum hennar, og þá á hvaða hátt, á grundvelli hvaða laga og með hvaða rökum.Helgi Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, segir í samtali við vísi að ákvörðun ráðherra komi sér á óvart. Ekki hefur náðst í Sigurð Inga þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Tengdar fréttir Fengu leyfi fyrir hvalabjórnum Umhverfis- og auðlindaráðherra heimilaði í gær sölu og dreifingu á hvalabjór Brugghússins Steðja í Borgarfirði. 25. janúar 2014 13:16 Hvalabjór í fyrsta skipti á markað Eflaust koma einhverjir til með að verða ósáttir, það er ákveðin áhætta og það er alveg meðvitað,“ segir eigandi brugghússins Steðja. 7. janúar 2014 07:30 Sala á Hvalabjór heimiluð Sala og dreifing á Hvalabjór Brugghússins Steðja í Borgarfirði hefur verið heimiluð af Sigurði Inga Jóhannssyni umhverfis- og auðlindamála. 24. janúar 2014 18:27 Hvalabjórinn bannaður Framleiðsla á Hvalabjór hefur verið bönnuð af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Ástæðan er að framleiðsla á hvalamjöli uppfyllir ekki skilyrði laga um matvæli. 13. janúar 2014 18:44 Hóta að breyta hvalabjórbruggstjóra í bjór Framleiðsla Brugghússins Steðja á nýjum Hvalabjór hefur hleypt illu blóði í hvalaverndunarsinna. 9. janúar 2014 20:00 Mest lesið Starfsemin sé ekki tryggð miðað við núverandi framlög Innlent Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur Innlent Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Erlent Eldgosin í stærri kantinum verði þau við flekamótin Innlent Öllum heilsast vel eftir fæðingu í háloftunum Innlent Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Erlent „Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Veður Skýringar konunnar haldi ekki vatni og pósturinn af kynferðislegum toga Innlent Vegfarendur horfi upp og húseigendur fjarlægi grýlukertin Innlent Draga minnisblað til baka eftir mikla óreiðu Erlent Fleiri fréttir Starfsemin sé ekki tryggð miðað við núverandi framlög Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur Eldgosin í stærri kantinum verði þau við flekamótin Vegfarendur horfi upp og húseigendur fjarlægi grýlukertin „Við ætlumst til að fólk finni lausnir og leysi deiluna“ Öllum heilsast vel eftir fæðingu í háloftunum Björn Ingi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Undrandi foreldrar og barnið sem fæddist í flugvél Býst við því að boða til fundar í kjaradeilu kennara Samþykktu nýjar siðareglur kjörinna fulltrúa Skýringar konunnar haldi ekki vatni og pósturinn af kynferðislegum toga „Þá gerist það bara mjög skyndilega að hundurinn ræðst að mér“ Hæstiréttur klofnaði í nauðgunarmáli Inga Vals Ísland ver mest Evrópuþjóða í leikskóla Leita vitna að árás hunds á konu Aðalmeðferð í máli foreldra gegn KÍ hefst klukkan 15 í dag „Seinni hluta febrúar eða snemma í mars er líklegt“ Mikið í húfi kæmi stórt gos úr Bárðarbungukerfinu Vill ræða við Trump í síma Spáir því að það gjósi eftir rúman mánuð Gult í kortunum Styrkjamálið hefur engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið Gekk út blóðugur með hendur á lofti og féll til jarðar Sjálfstæðisflokkur bætir mest við sig í nýrri könnun Býður sig fram til formanns VR Misstu stýrið og rak nálægt landi Á ekki að teljast til mannréttinda að fá að ofsækja fólk Skýtur fast á Kristrúnu: „Þetta heitir að skrópa í vinnunni“ Lenti á Íslandi eftir fæðingu í háloftunum Vestfirðingar þokast nær langþráðum vegabótum Sjá meira
Fengu leyfi fyrir hvalabjórnum Umhverfis- og auðlindaráðherra heimilaði í gær sölu og dreifingu á hvalabjór Brugghússins Steðja í Borgarfirði. 25. janúar 2014 13:16
Hvalabjór í fyrsta skipti á markað Eflaust koma einhverjir til með að verða ósáttir, það er ákveðin áhætta og það er alveg meðvitað,“ segir eigandi brugghússins Steðja. 7. janúar 2014 07:30
Sala á Hvalabjór heimiluð Sala og dreifing á Hvalabjór Brugghússins Steðja í Borgarfirði hefur verið heimiluð af Sigurði Inga Jóhannssyni umhverfis- og auðlindamála. 24. janúar 2014 18:27
Hvalabjórinn bannaður Framleiðsla á Hvalabjór hefur verið bönnuð af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Ástæðan er að framleiðsla á hvalamjöli uppfyllir ekki skilyrði laga um matvæli. 13. janúar 2014 18:44
Hóta að breyta hvalabjórbruggstjóra í bjór Framleiðsla Brugghússins Steðja á nýjum Hvalabjór hefur hleypt illu blóði í hvalaverndunarsinna. 9. janúar 2014 20:00