Erlent

Skaut úr riffli á lögreglubifreið

Óli Kristján Ármannsson / AP skrifar
Lögreglumenn í Los Angeles í Bandaríkjunum rannsaka vettvang skotárásar á lögreglumenn sem þar átti sér stað aðfaranótt mánudags.
Lögreglumenn í Los Angeles í Bandaríkjunum rannsaka vettvang skotárásar á lögreglumenn sem þar átti sér stað aðfaranótt mánudags. Fréttablaðið/AP
Engan sakaði þegar maður skaut með riffli á tvo lögreglumenn í bifreið þeirra í Los Angeles aðfaranótt mánudags.

Nuria Venegas, talskona lögreglunnar í Los Angeles, sagði í gær að einn hefði verið handtekinn vegna málsins og annars væri leitað vegna árásarinnar sem átti sér stað í suðurhluta borgarinnar. Þar vaða uppi glæpagengi og lögregla er með stöðugan viðbúnað.

Mikil spenna ríkir milli lögreglu og mótmælenda í Bandaríkjunum vegna ofbeldis af hálfu lögreglu. Á þessu ári hefur lögregla í tvígang skotið til bana óvopnaða blökkumenn í New York og Missouri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×