Segir Vigdísi fara með rangt mál 12. september 2014 23:30 Páll Matthíasson.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir Vigdísi Hauksdóttur formann fjárlaganefndar Alþingis fara með fleipur þegar hún haldi því fram að framlög til sjúkrahússins hafi numið 10 milljörðum með fjárlögum ársins 2014 og frumvarpi til ársins 2015. Þar með hefði niðurskurður verið jafnaður. Þetta kemur fram í forstjórapistli sem Páll ritar á vef Landspítalans í gær. Í honum vitnar Páll í ummæli sem Vigdís lét falla í gærmorgun á Bylgjunni. Páll segir að ef jafna hefði átt hallann hefðu framlög til sjúkrahússins orðið að nema 16 milljörðum króna á tímabilinu. Framlögin þessi tvö ár hafi hins vegar numið 6,3 milljörðum króna. „Þetta fer nokkuð fjarri þeim tíu milljörðum sem formaðurinn nefndi,“ segir forstjórinn og heldur áfram. „Staðreyndin er sú að í ár fær Landspítali um 10 prósent minna fé til reksturs en hann fékk árið 2008 miðað við fast verðlag.“ Að sögn Páls hefur síðan þá ekki einungis verið hagrætt gríðarlega í starfseminni, eins og formaður fjárlaganefndar bendir réttilega á heldur hafi einnig verið bætt við fjölmörgum nýjum verkefnum. Þar tiltekur forstjórinn sérstaklega þjónustu við eldri borgara.- jme
Alþingi Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Innlent Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Hótaði heimilismönnum með skærum Innlent Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Erlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Fleiri fréttir Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun „Fólki er frekar misboðið“ Gosið gætið varað í nokkrar vikur Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Höfðu ekki áhyggjur af lóninu sjálfu Skilorðsbundinn dómur yfir strætóbílstjóra staðfestur Veit ekki hver getur tekið við gögnunum Refsing Jaguars þyngd verulega Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli Samið um sjálfstæða leikskóla í Reykjavík Vilja byggja vísindasetur fyrir almenning í Háskólabíói Útlit fyrir að varnir Bláa lónsins haldi Hart tekist á um fyrirætlanir Heidelberg í Þorlákshöfn Bein útsending: Hver er sýn flokkanna á lífskjör eldra fólks? Verkföll boðuð í fjórum grunnskólum í janúar „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Komust langt að gosinu því það gleymdist að loka veginum Nýsköpun eða „rándýr aðgangur“?: 300.000 króna heilskimun aftur á boðstólnum Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Káfaði á konu á salerni skemmtistaðar Segir komið fram við sig eins og glæpamann fyrir að vilja vera heima í Grindavík „Ekki rólegur með hraunið ofan á“ Samfylkingin bætir við sig í fyrsta sinn síðan í maí og Píratar úti Varar við sprengjum á svæðinu við gosstöðvarnar Sjá meira