Sport

Hulda bætti Íslandsmet sitt um fjórtán sentimetra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hulda kastar kúlunni síðastliðið sumar.
Hulda kastar kúlunni síðastliðið sumar. Mynd/ÍF
Frjálsíþróttakonan Hulda Sigurjónsdóttir setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í kúluvarpi innanhúss  á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum.

Hulda, sem keppir í flokki þroskahamlaðra (F20), gerði sér lítið fyrir og varpaði kúlunni 9,34 metra. Hún bætti met sitt um 14 sentimetra en það Íslandsmet hafði staðið frá Aðventumóti Ármanns sem fram fór í desember. Myndband af því kasti má sjá hér að neðan.

Þá jafnaði Ingeborg Eide Garðarsdóttir Íslandsmet sitt í kúluvarpi á sama móti en Ingeborg keppir í flokki F37, flokki spastískra. Ingeborg varpaði kúlunni 7,50 metra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×