Brak vélarinnar fundið 31. desember 2014 13:00 Brak úr vélinni fundið Dwi Putranto, yfirmaður í indónesíska flughernum, sýnir ferðatösku og annað sem fannst á floti í Jövuhafi. Fréttablaðið/AP
Indónesía, AP Mikill grátur og harmakvein brutust út í gær meðal ættingja farþega indónesísku þotunnar sem fórst á sunnudag þegar tilkynnt var að fundist hefði brak úr vélinni og tugir líka á floti í Jövuhafinu. Þremur dögum eftir hvarf farþegaþotu flugfélagsins AirAsia varð ljóst að hún hefði farist í hafi í um það bil 160 kílómetra fjarlægð frá eyjunni Borneó. Hún var á leiðinni frá borginni Súrabaja í Indónesíu til Singapúr á sunnudaginn var, og var tæplega hálfnuð þegar hún hrapaði í hafið. Um borð voru 162 manns, farþegar og áhöfn. Nánast allir farþegarnir voru Indónesíubúar, sem oft gera sér ferð til Singapúr á frídögum. „Ég veit að vélin hefur farist, en ég get ekki trúað því að bróðir minn og fjölskylda hans séu látin,“ segir Ifan Joko, sem missti sjö ættingja sína, þar af þrjú börn. Enn var ekki vitað hvað olli hrapi vélarinnar en ljóst að mun auðveldara yrði að finna svarta kassann og annað úr vélinni þarna en malasísku farþegaþotuna sem hvarf sporlaust í mars síðastliðnum. Sú þota er talin hafa hrapað í Suður-Indlandshaf vestur af Ástralíu, þar sem hafdýpið er hundrað sinnum meira en í Jövuhafi. „Þetta gerir leitina miklu einfaldari,“ segir Eric van Sebille, haffræðingur við háskóla í Sydney í Ástralíu. Dýptin í Jövuhafi er að meðaltali um 40 til 50 metrar, þannig að oft væri hægt að sjá stórt brak á hafsbotni án þess að þurfa dýran leitarbúnað. Brak vélarinnar fannst á stað sem er aðeins tíu kílómetra frá þeim stað þaðan sem síðast bárust merki frá henni. Dýpi þarna er ekki nema 20 til 30 metrar. Töluverður öldugangur gerði þó björgunarfólki erfitt fyrir. Tony Fernandez, stofnandi og forstjóri lággjaldaflugfélagsins AirAsia, hélt í gær til Súrabaja til að votta aðstandendum hinna látnu samúð sína persónulega: „Ég er leiðtogi þessa fyrirtækis og verð að taka á mig ábyrgðina. Þess vegna er ég hér. Ég ætla ekki að hlaupast á brott undan skyldum mínum,“ sagði hann. gudsteinn@frettabladid.isw
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Fleiri fréttir Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Sjá meira