Sport

Stunginn af bróður sínum

Mike Williams.
Mike Williams. vísir/getty
Útherji NFL-liðsins Tampa Bay, Mike Williams, tekur ekki þátt í æfingum á næstunni eftir að hafa verið stunginn af bróður sínum.

Atvikið átti sér stað á heimili Williams. Eitthvað gekk á því bróðir hans stakk hann í lærið. Williams var fluttur á spítala í gær en er nú kominn aftur heim til sín.

Lögreglan leitar nú að bróðurnum, Eric Baylor, en hann hefur einhverra hluta vegna ekki látið ná í sig.

Williams er hæfileikaríkur leikmaður en er iðinn við að koma sér í fréttirnar fyrir vafasama hluti utan vallar. Að þessu sinni er þó erfitt að kenna honum um.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×