Íslenski boltinn

Jonathann Glenn fer á kostum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Stefán
Eftir dapra byrjun virðist ekkert geta stöðvað Jonathann Glenn þessa dagana. Glenn skoraði sitt fimmta mark í fjórum leikjum í tapinu gegn KR í gær.

Glenn var í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið á dögunum þar sem hann ræddi meðal annars fyrstu vikurnar hjá ÍBV. Sagðist hann ekki hafa hlustað á gagnrýnisraddir, þess í stað lagt meira á sig.

„Það eru fastir liðir ef liðinu gengur illa. Leikmennirnir þurfa bara að svara því inni á vellinum. Það skiptir engu máli hvað fjölmiðlarnir segja. Ég hélt bara alltaf áfram að standa mig,“ sagði Glenn.

ÍBV er enn án sigurs í Pepsi-deildinni eftir 2-3 tap gegn KR í gær en næsti leikur liðsins er gegn Keflavík á miðvikudaginn í næstu viku. Leikur ÍBV og KR verður gerður upp í Pepsi mörkunum í kvöld.




Tengdar fréttir

Skiptir engu máli hvað fjölmiðlarnir segja

Jonathan Glenn, framherji ÍBV, er kominn á skrið í markaskorun eftir erfiða byrjun. Stóð sig á úrtaksæfingum í Flórída og fékk tækifæri í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×