Sport

Vopnabúr Denver gegn Sprengjusveit Seattle

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Richard Sherman varnarmaður Seattle Seahawks.
Richard Sherman varnarmaður Seattle Seahawks. Vísir/Getty
Einna athyglisverðast verður að fylgjast með hvernig Peyton Manning, leikstjórnanda Denver, ferst úr hendi að stýra sóknarleik sinna manna gegn gríðarsterkri aftari varnarlínu Seattle-liðsins – svokallaðri sendingavörn. Síðarnefndi hópurinn gengur undir gælunefninu Sprengjusveitin (e. Legion of Boom) og er skipaður hópi háværra, áberandi og að sumu leyti athyglissjúkra ungra manna sem finnst ekkert skemmtilegra en að stíga fram með digurbarkalegar yfirlýsingar sem þeim tekst svo yfirleitt að standa undir.

Hinn 37 ára gamli Manning er hins vegar hógværðin uppmáluð og lætur yfirleitt duga að láta verkin tala. Hann gerir yfirleitt lítið úr eigin framlagi og er duglegur að lofa liðsfélaga sína þegar vel gengur.

Það er sannarlega réttnefni að kalla útherjasveit Mannings vopnabúr en það eru þeir leikmenn sem hafa það hlutverk að grípa sendingar leikstjórnandans. Í fyrsta sinn í sögunni eru nú fimm leikmenn í sama liðinu með minnst tíu snertimörk yfir tímabilið. Þeir eru útherjarnir Demaryius Thomas, Eric Decker og Wes Welker, innherjinn Julius Thomas og hlauparinn Knowshon Moreno.

Vísir/Getty
Sprengjusveitin áðurnefnda hefur það hlutverk að taka vopnin úr greipum Mannings og snúa þeim gegn honum. Seattle-vörnin er nefnilega sú besta í því að komast inn í sendingar andstæðinga og refsa með því að skora mark – ekki ólíkt því sem við þekkjum úr handboltanum. Munurinn er sá að mörkin eru mun „dýrmætari“ í NFL og því geta varnir liðanna hreinlega umturnað heilu leikjunum á svipstundu.

Vörn Seattle fer yfirleitt fremst í sínum flokki og tölfræðin sannar það. Vörnin fékk fæst stig á sig allt tímabilið, fæsta sendingarjarda á sig að meðaltali í leik og átti flesta stolna bolta eða 39 talsins yfir árið. Flest inngrip á hinn málglaði bakvörður, Richard Sherman, eða átta talsins en hann var einn þriggja varnarmanna liðsins sem komust í úrvalslið NFL-deildarinnar í ár. Hinir eru Earl Thomas og Kam Chancellor – allir meðlimir hinnar rómuðu Sprengjusveitar.

Super Bowl verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD í kvöld. Upphitun hefst klukkan 22.00 en leikurinn sjálfur klukkan 23.25. Andri Ólafsson stýrir umræðum á meðan leiknum stendur og áhorfendur eru hvattir til að taka þátt á Twitter með merkinu ‪#‎NFLisland‬.

NFL

Tengdar fréttir

Þetta er gott að vita um Super Bowl leikinn í kvöld

Það er nauðsynlegt að vera með nokkur atriði á hreinu fyrir stærsta íþróttakappleik helgarinnar en Denver Broncos og Seattle Seahawks mætast í kvöld í Super Bowl í beinni á Stöð 2 Sport.

NFL: Manning verðmætasti leikmaðurinn

Peyton Manning var í nótt valinn verðmætasti leikmaður NFL-deildarinnar í fimmta sinn á ferlinum. Manning og félagar í Denver Broncos mæta Seattle Seahawks í kvöld um Vince Lombardi bikarinn í Ofurskálinni(e. Superbowl).

NFL: Bestu ummæli leikmannanna

Leikmenn NFL-deildarinnar eru eins misjafnir og þeir eru margir og láta ýmislegt upp úr sér í hita leiksins.

NFL: Magnað sjónarspil

Tímabilið í NFL-deildinni nær hápunkti á sunnudagskvöld þegar Denver Broncos og Seattle Seahawks eigast við í Super Bowl.

„Ekki láta neinn stoppa þig“

Það kemur í hlut hins 28 ára Bandaríkjamanns Bruno Mars að skemmta lýðnum á sunnudagskvöldið þegar stærsti íþróttaviðburður ársins í Bandaríkjunum fer fram.

Manning: Líður mun betur í ár en í fyrra

Peyton Manning, leikstjórnandi Denver Broncos, segist bera virðingu fyrir öflugri vörn Seattle Seahawks en liðin mætast í Super Bowl annað kvöld.

Wilson: Ég vil líkjast Peyton

Seattle-maðurinn Russell Wilson segist bera mikla virðingu fyrir Peyton Manning, leikstjórnanda Denver Broncos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×