Blendin viðbrögð við stofnun Kalífadæmis Brjánn Jónasson skrifar 1. júlí 2014 06:30 Stuðningsmenn ISIS í írösku borginni Mósúl fögnuðu yfirlýsingu samtakanna um stofnun kalífadæmis, ef marka má myndir sem samtökin sendu frá sér. Fréttablaðið/AP
Samtökin Íslamskt ríki í Írak og Austurlöndum nær, ISIS, lýstu því yfir í gær að þau hafi stofnað kalífadæmi á landi sem tilheyrir Sýrlandi og Írak. Í kjölfarið lýstu samtökin því yfir að þau hafi skipt um nafn, og muni hér eftir heita Islamska ríkið. Samtökin hafa haft það sem yfirlýsta stefnu sína að stofna kalífadæmi, og hafa nú stigið skrefið til fulls. Í yfirlýsingu samtakanna segir að leiðtogi þeirra, Abu Bakr al-Baghdad, hafi verið útnefndur kalífi, og verði hér eftir kallaður Ibrahim kalífi. Viðbrögð við þessum yfirlýsingum voru blendin. Stuðningsmenn samtakanna fögnuðu gríðarlega, en stjórnvöld í Írak og Íran fordæmdu hana harðlega. Sérfræðingar í málefnum svæðisins telja þetta geti haft slæm áhrif á samband ISIS við hópa hófsamari súnníta sem gert haa bandalag við ISIS gegn stjórnvöldum í Írak. Sjaría-lög verða í gildi í kalífadæminu. Í borginni Raqqa í Sýrlandi, sem hefur verið lengi í höndum ISIS, er tónlist bönnuð, konur þurfa að hylja sig og kristnir þurfa að greiða sérstakan skatt. Þá hafa aftökur verið haldnar á aðal torgi borgarinnar.
Mið-Austurlönd Mest lesið Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Erlent Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Innlent „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Erlent Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Fleiri fréttir Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Sjá meira