Menning

Sum tímabil eru örlagaríkari en önnur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Pétur er af hinni frægu 68-kynslóð, sem ferðaðist á puttanum um lönd og álfur.
Pétur er af hinni frægu 68-kynslóð, sem ferðaðist á puttanum um lönd og álfur. fréttablaðið/gva
„Hugmynd mín er sú að við eigum öll hina stóru veraldarsögu sem við lærum um en svo eigi hver einstaklingur sína veraldarsögu. Ég bregð ljósi á mína í nýju bókinni,“ segir Pétur Gunnarsson rithöfundur.

Pétur verður í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, annað kvöld klukkan 20, ásamt Orra Harðarsyni, rithöfundi og tónlistarmanni. Þeir ætla að svara spurningum Hallgríms Helgasonar um nýútkomnar bækur sínar.

Orri er með bókina Stundarfró sem hefur fengið lofsamlega dóma þeirra sem lesið hafa og bók Péturs er glóðvolg úr prentsmiðjunni. Hún heitir Veraldarsaga mín og eins og nafnið bendir til er hún sjálfsævisöguleg. Þó er ekki öll ævin undir.

„Sum tímabil móta mann til framtíðar og eru örlagaríkari en önnur,“ segir Pétur. „Í þessari bók fjalla ég um tímabilið frá tvítugu til 26 ára. Þá fer ég til Frakklands og dvel þar við nám og skriftir. Það var mikil lenska á þessum árum að ferðast á puttanum og ég og kærastan fórum í langt puttaferðalag um Ítalíu og Grikkland, það kemur líka við sögu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×