Menning

Tónleikagestir fá að taka undir

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Söngfjelagið var stofnað fyrir þremur árum og auk þess að fagna sumri í Iðnó eru aðventutónleikar fastur liður í starfsemi þess.
Söngfjelagið var stofnað fyrir þremur árum og auk þess að fagna sumri í Iðnó eru aðventutónleikar fastur liður í starfsemi þess.
„Elsta lagið á tónleikunum er frá miðöldum en uppruna flestra jólalaganna má rekja til síðari hluta 19. aldar, sem kallaður hefur verið Viktoríutíminn. Öll eru þau í anda enskrar jólahefðar,“ segir Hilmar Örn Agnarsson um aðventutónleika Söngfélagsins sem verða á morgun í Langholtskirkju klukkan 16 og 20.

Hilmar Örn segir mikla vakningu hafa orðið í varðveislu og skráningu á þjóðlögum og mörg ný jólalög og sálma hafa litið dagsins ljós á Viktoríutímanum. Það hafi orðið til að efla jólin sem fagnaðarhátíð alþýðunnar.



„Tónlistin einkennist af gleði og fögnuði og hún hefur notið vinsælda víða um heim um árabil,“ segir Hilmar Örn og bætir við: „Líkt og tíðkast ytra gefst gestum kjörið tækifæri til að taka undir með kórnum í sígildum jólalögum.“



Í bland við ensku jólalögin verður flutt frönsk og íslensk jólatónlist auk þess sem frumflutt verður jólalag Söngfjelagsins 2014, Ave Maria, eftir Georg Kára Hilmarsson.

Fyrrverandi organisti í Westminster Abbey verður meðal sérlegra gesta Söngfjelagsins á jólatónleikunum. Hann heitir Martin Neary.

Auk hans verða þau Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona, Hrólfur Sæmundsson barítón, og Adrian Peacock djúpbassi með á tónleikunum. Elísabet Waage leikur á hörpu og Peter Tompkins á óbó.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×