Menning

Jólagleði og gaman

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Anna Guðný og Diddú flytja valdar perlur.
Anna Guðný og Diddú flytja valdar perlur. Vísir/GVA
Þær verða væntanlega í ekta jólaskapi vinkonurnar Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir á hádegistónleikum í Salnum í dag sem hefjast klukkan 12.15.

Byrjað verður á að bjóða gestum upp á kaffi, te og piparkökur fyrir tónleikana svo betra er að mæta tímanlega.

Tónleikarnir hafa yfirskriftina Nú minnir svo ótalmargt á jólin og er það tilvísun í einn textann. Sem dæmi um fleiri lög á efnisskránni má nefna Það á að gefa börnum brauð, Jól, Hin fyrstu jól, Maríukvæði, Tíðin rennur og lagið Madrigal sobre un tema popular frá Katalóníu.

Tónleikarnir eru hálftíma langir og hefjast eins og fyrr segir klukkan 12.15.

Miðaverð er 1.200 krónur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×