Menning

Stórstjarna við orgelið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Snillingur Christian Schmitt spilar annað kvöld í Hallgrímskirkju og aðgangur er ókeypis.
Snillingur Christian Schmitt spilar annað kvöld í Hallgrímskirkju og aðgangur er ókeypis.
„Christian Schmitt er einn eftirsóttasti konsertorganisti heimsins í dag. Hann býður upp á fjölbreytta orgeltónlist í Hallgrímskirkju, með jólalegu ívafi sem ætti virkilega að gleðja tónlistarunnendur. Það er líka gaman að segja frá því að aðgangur er ókeypis,“ segir Inga Rós Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Listvinafélags Hallgrímskirkju, um tónleika í kirkjunni annað kvöld klukkan 20.

Hún nefnir feðgana J.S. Bach og C.Ph.E. Bach sem dæmi um höfunda verka á efnisskránni.

Christian Schmitt hlaut Echo, ein æðstu verðlaun tónlistarmanna í Þýskalandi, árið 2013. Það er þýska sendiráðið sem fær hann hingað til lands. Þetta er í þriðja sinn sem hann spilar í Hallgrímskirkju. Inga Rós segir Klais-orgelið þar hafa aðdráttarafl.

„Það er mikill heiður að fá Schmitt til að koma fram á yfirstandandi Jólatónlistarhátíð,“ segir hún. „Eftir tónleikana hjá okkur heldur hann til Akureyrar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×