Menning

Rómantískir tónar rússneskrar domru

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Flemming Viðar Valmundsson, Gerður Bolladóttir og Marina Shulmina.
Flemming Viðar Valmundsson, Gerður Bolladóttir og Marina Shulmina. Mynd/Mikhail Timofeev
„Við leggjum dálítið upp úr því að hafa tónleikana svolítið heimilislega og kósý. Dagskráin á að höfða til allra aldurshópa, þess vegna má alveg koma með börnin með,“ segir Gerður Bolladóttir sópransöngkona um tónleika Trio Kalinka í Garðakirkju á morgun. Tríóið skipa auk Gerðar þau Marina Shulmina á dorma og Flemming Viðar Valmundsson á harmóníku.

„Við verðum með jólalög fá ýmsum löndum og áherslan er á þau íslensku en við flytjum sálmana á svolítið nýjan hátt. Rússneski stíllinn kemur sterkur inn því dorman er ekta rússneskt hljóðfæri með rómantíska tóna. Það er strengjahljóðfæri, ekki ósvipað banjói og hefur seiðandi tón. Mér finnst hann passa mjög vel við íslensku lögin,“ segir Gerður.

Þegar haldnir eru jólatónleikar finnst tríóinu staðsetning og umhverfi skipta máli. „Þess vegna völdum við Garðakirkju,“ segir Gerður glaðlega. „Þegar keyrt er að Garðakirkju, á leið út á Álftanes, er eins og breiður sveitafaðmur taki á móti manni og ljósadýrð frá kirkjugarðinum speglast í haffletinum. Kirkjan skartar líka sínu fegursta.“

Tónleikarnir hefjast klukkan 18 á morgun, aðgangseyrir er 2.000 krónur en frítt er fyrir yngri en 18 ára.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.