Áratugur liðinn frá mannskæðu flóðbylgjunni á Indlandshafi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 27. desember 2014 09:30 Mahinda Rajapakse, forseti Srí Lanka, hafði tveggja mínútna þögn í forsetahöllinni til að minnast þeirra sem létust. vísir/afp
Tíu ár eru liðin frá því að jarðskjálfti, 9,1 að styrk, reið yfir á Indlandshafi og kom af stað flóðbylgju sem kostaði um 230 þúsund manns lífið. Staðfest er að tæplega 185 þúsund manns, af tæplega sextíu þjóðernum, hafi látist og ríflega 45 þúsunda er enn saknað. Flóðbylgjan, sem var allt að sextán metra há er hún náði landi, olli meðal annars manntjóni á Srí Lanka, í Taílandi, Sómalíu, á Maldíve-eyjum og í Suður-Afríku. Mestur varð skaðinn hins vegar í Indónesíu þar sem yfir 130 þúsund manns létust og meira en hálf milljón varð heimilislaus. Athafnir voru haldnar víðsvegar um Suðaustur-Asíu til að minnast hamfaranna og þeirra sem í þeim létust. Í Banda Aceh, höfuðstað Aceh-héraðs í Indónesíu sem var það svæði sem verst varð úti, stýrði Jusuf Kalla, varaforseti landsins, athöfninni. Hún fór fram við fjöldagrafir fórnarlambanna. „Þúsundir líka lágu hér á þessum velli. Tárin sem féllu voru tár sorgar, hræðslu og ringulreiðar. Við áttum ekkert nema bænina,“ sagði Kalla. Hann bætti við að lengi hefðu staðið bardagar milli stjórnvalda og uppreisnarmanna í héraðinu en í kjölfar hamfaranna hefðu allir lagst á eitt við að endurbyggja landið. Fyrr um daginn höfðu þúsundir komið saman í mosku bæjarins og hlýtt á klerkinn. Moskan var nánast eina húsið sem enn stóð eftir flóðbylgjuna.Þessi mynd sýnir Banda Aceh á eynni Súmötru í Indónesíu í janúar 2005 og síðan í upphafi þessa mánaðar.vísir/afpÍ Taílandi lagði forsætisráðherrann, Prayut Chan-ocha, blómsveig að lögreglubát sem skolaði tvo kílómetra upp á land með vatnsflaumnum. Báturinn er nú minnisvarði um þá sem létust en tæpur helmingur þeirra sem fórust þar í landi var erlendir ferðamenn. Í Srí Lanka hefur Samudra Devi-lestin verið endurbyggð en hún var meðal þess sem eyðilagðist þar í landi. Tæplega 1.300 farþegar lestarinnar létust. Í tilefni dagsins fór hún sérstaka ferð til að minnast þeirra. Ættingjar þeirra sem létust fóru um borð í lestina og staðnæmdust á þeim stað er flóðbylgjan grandaði fyrirrennara hennar. Yfir fimm hundruð Svíar létust í flóðbylgjunni og var þeirra minnst í dómkirkjunni í Uppsölum. Í kjölfar hörmunganna hafa þau lönd sem liggja að Indlandshafi komið fyrir flóðbylgjuviðvörunarkerfum. Yfir 400 milljónum dollara hefur verið varið til verksins í 28 löndum. Hækki yfirborð sjávar í kjölfar stórra skjálfta flýr fólk strendurnar og kemur sér í var á svæði sem stendur hærra. Reglulega eru haldnar æfingar um hvernig bregðast eigi við sé mögulegrar flóðbylgju að vænta. Umdeilt er meðal sérfræðinga hve áreiðanlegt kerfið sé og hvort nóg hafi verið gert til að fyrirbyggja að annar eins mannskaði verði vegna flóðbylgna á þessu svæði heimsins.
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Fleiri fréttir Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Sjá meira