Frosti styður ekki hækkun matarskatts Aðalsteinn Kjartansson skrifar 16. nóvember 2014 12:30
Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins, segist ekki geta stutt hækkun á matarskatti eins og staðan er í dag. Hann segir þær mótvægisaðgerðir sem kynntar hafa verið ekki nægja til að tryggja að skattabreytingarnar leiði til kjarabóta fyrir alla í samfélaginu. Þetta sagði hann í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þar var Frosti spurður hvort hann styddi yfir höfuð hækkun matarskatts. „Aðeins ef það leiðir til kjarabóta fyrir alla í samfélaginu,“ svaraði hann og sagði að þær mótvægisaðgerðir sem kynntar hafa verið nú vegna fyrirhugaðra breytinga ekki duga. „Ekki það sem við vorum búin að sjá. Það dugar ekki. Það verður að gera betur og við eigum von á því að fá breytingar.“ Frosti segist þó vera viss um að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafi lagt fram tillögurnar með það að markmiði að heildaráhrifin yrðu jákvæð fyrir alla. „Ég held að það hafi verið lagt fram með því hugarfari af fjármálaráðherra að þetta ætti að vera skattalækkun fyrir alla, kjarabót fyrir alla og til að draga úr hvötum til undanskota,“ sagði hann. Hægt er að hlusta á brot úr Sprengisandi í spilaranum efst í fréttinni en matarskatturinn kemur til umræðu undir lok hljóðbrotsins.
Alþingi Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Fleiri fréttir „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Sjá meira