Tónlist

Tónlistarveisla á Húrra annað kvöld

Hljómsveitin Sísý Ey
Hljómsveitin Sísý Ey
Á morgun, laugardaginn 27. september slá þau Intro Beats, DJ Margeir og hljómsveitin Sísý Ey upp heljarinnar veislu á skemmtistaðnum Húrra.

Gleðskapurinn hefst klukkan tíu.

Að sögn hljómsveitarmeðlima Sísý Ey, þeim Friðfinni Sigurðssyni og Sigríði, Elínu og Elísabetu Eyþórsdætrum, verður fókusinn settur á dans.

„Við viljum að allir dansi og skemmti sér. Þetta á að verða tryllt dansipartý!"

Intro Beats
Intro Beats hefur vakið mikla athygli undanfarið, þá sérstaklega fyrir lag sitt Release Me sem hann gaf út ásamt DJ Yamaho.

Intro Beats, sem heitir réttu nafni Ársæll Þór Ingvason, er vel þekktur plötusnúður.

Þá var hann annar tveggja umsjónarmanna þáttarins Á bak við borðin sem sýndur var á Popp Tv og Vísi.

Í þáttunum heimsóttu þeir bæði þekkta og óþekkta tónlistarmenn í stúdíóin þeirra, grennsluðust fyrir um vinnuferli þeirra og hvernig þeir búa til músík.






Dj MargeirLilja Birgisdóttir
DJ Margeir þekkja flestir en hann er einn þekktasti plötusnúður á Íslandi. Margeir skrifaði á dögunum undir samning við þýska útgáfufyrirtækið HFN-music en fyrirtækið gefur meðal annars út hinn virta tónlistarmann Trentemöller. 

Þá er hann þekktur fyrir að spila í Bláa-lóns partýunum sem haldin hafa verið undanfarið við góðan orðstír. Hann gaf út sína þriðju plötu í sumar.

Hljómsveitin Sísý Ey þekkja flestir fyrir smellinn Ain't got nobody, sem kom út sumarið 2012. Síðan hefur sveitin verið iðin við kolann og fengið tónlistarmenn á borð við Unnstein Manuel í samstarf við sig.

Þannig verður sannkölluð tónlistarveisla á Húrra annað kvöld.



Tengdar fréttir

Partý á toppi Esjunnar - myndband

DJ Margeir og Ásdís María söngkona tróðu upp á toppi Esjunnar fyrir skömmu í mögnuðu partýi á toppi Esjunnar.

Á bak við borðin - Magnús Öder

Í þáttunum Á bak við borðin heimsækja tónlistarmennirnir Intro Beats og Guðni Impulze tónlistarmenn og grennslast fyrir um vinnuferli þeirra og hvernig þeir búa til tónlist.

Frumsýning: Á bak við borðin

Nýir tónlistarþættir Intro Beats í samstarfi við Hljóðheima. Fyrsti gestur er Doddi úr Samaris.

Systur syngja saman í kvöld

Systurnar eru líklega best þekktar fyrir að vera meðlimir í hljómsveitinni Sísý Ey

Syngur í fyrsta sinn opinberlega

Tveir reyndir, íslenskir plötusnúðar, DJ IntroBeats og DJ Yamaho, hafa leitt saman hesta sína og búið til lagið Release Me.

Íslendingar eru alltaf að verða umburðarlyndari

Tónlistarkonan Elín Eyþórsdóttir sökkti sér í tónlistina eftir að hafa fengið kóngabláan rafmagnsgítar í fermingargjöf fyrir rúmum áratug. Hún syngur nú með systrum sínum í hljómsveitinni Sísý Ey og vinnur að sinni fyrstu sólóplötu. Elín segir Ísland stan

Partý á toppi Esjunnar

Stærsti skemmtistaður í heimi verður staðsettur á toppi Esjunnar.

Varar plötusnúða við prettum

Ársæll Þór Ingvason, betur þekktur sem IntroBeats, lenti í nýstárlegri svikamyllu og er ekki á leið til Vegas.

Magnaðir tónleikar í Bláa Lóninu

Jónsmessutónleikar DJ Margeirs í tilefni af útgáfu þriðja geisladisks Bláa Lónsins voru haldnir í gærkvöldi ofan í lóninu

Á bak við borðin - Mosi

Í þáttunum heimsækja tónlistarmennirnir Intro Beats og Guðni Impulze tónlistarmenn og grennslast fyrir um vinnuferli þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×