Sakar Sjálfstæðisflokkinn um undirlægjuhátt Jakob Bjarnar skrifar 18. júní 2014 08:10 Sveinbjörg Birna greiðir atkvæði í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Urgur er í Framsóknarmönnum vegna úthlutunar sæta í nefndum á vegum borgarinnar. visir/pjetur
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir Halldór Halldórsson og Sjálfstæðismenn hafa þegið bitlinga frá meirihlutanum í borgarstjórn. „Við skuldum meirihlutanum ekki neitt,“ sagði Sveinbjörg Birna í viðtali við Bergstein Sigurðsson í morgunútvarpi Rásar 2, nú fyrir stundu. Ummæli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra þess efnis að Framsóknarflokkurinn sé vart stjórntækur, þá með vísan til þess að þeir hafi gert út á atkvæði þeirra sem vilja gjalda varhug við því að moska múslima rísi hér á landi, hafa vakið athygli. Þá hefur Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna, sagt að Framsóknarflokkurinn verði að gera hreint fyrir sínum dyrum. Urgur er í Framsóknarmönnum vegna þessa og hvernig staðið er að skipan í nefndir og ráð á vegum borgarinnar. Sveinbjörg Birna sagði: „Sjálfstæðisflokkurinn er að þiggja bitlinga frá meirihlutanum.“ Oddvitinn vísar þar til stjórnarsetu í Faxaflóahöfnum og Orkuveitunni – stjórnarseta sem telst feitur biti þegar hrossakaup flokkanna eru annars vegar. Hins vegar skuldi Framsóknarflokkurinn meirihlutanum í Reykjavík ekki neitt og getur því verið heill í stjórnarandstöðu í borginni. „Ef þeir verða ekki þægir og ganga í takt, þá verður þeim annað hvort hent eftir ár eða þeim klappað,“ segir Sveinbjörg Birna.
Mest lesið Blóð á veggjum og gólfi og maður fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögregla stöðvaði unglingapartý í Guðmundarlundi Innlent Blendnar tilfinningar í Borgarnesi: „Það hefur nær ekkert samráð verið“ Innlent Útilokar ekki rétt til reykinga á hjúkrunarheimilum Innlent Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Erlent Brutu rúður og gengu berserksgang um klaustrið í Garðabæ Innlent Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki Erlent Hundruð freista þess að gera góð kaup í Nexus Innlent Samningur stærsta félags BHM gæti hreyft við öðrum félögum Innlent Brottfararsalurinn rýmdur vegna grunsamlegrar tösku Innlent Fleiri fréttir Brutu rúður og gengu berserksgang um klaustrið í Garðabæ Vara við svindlurum sem líkja eftir Mbl.is Þúsundir ferðamanna á dag streyma til Ísafjarðar Sjálfstæðisflokkur og Píratar að miklu leyti til eins Segir kæru Kristjáns út í hött Sauðfé fækkar og framtíðarhorfur óljósar Samningur stærsta félags BHM gæti hreyft við öðrum félögum Kjarasamningar og stórsigur Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi Lögregla stöðvaði unglingapartý í Guðmundarlundi Hundruð freista þess að gera góð kaup í Nexus Brottfararsalurinn rýmdur vegna grunsamlegrar tösku Kjósendur hafi nýtt forsetakosningar til að senda pólitíkinni skilaboð Blóð á veggjum og gólfi og maður fluttur með sjúkrabíl Blendnar tilfinningar í Borgarnesi: „Það hefur nær ekkert samráð verið“ Spennt fyrir menningarlífinu og náttúrunni á Akureyri Eldur kom upp í rafmagnshlaupahjóli í hleðslu innandyra Útilokar ekki rétt til reykinga á hjúkrunarheimilum Von á átján stiga hita á Hallormsstað Brotist inn í fataverslun Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Hundsbitum fari fjölgandi Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tónlistarveisla framundan í Skálholti Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Sjá meira