Teikningar að leynivopni sáust í sjónvarpinu fyrir mistök Samúel Karl Ólason skrifar 12. nóvember 2015 21:41 Þetta er tekningin sem sýnd var "fyrir mistök“.
Ríkisrekinn fjölmiðill í Rússland birti í dag teikningu af kjarnorkuvopni í sjónvarpi. Verið var að sýna frá fundi Vladimir Putin og hæst settu hershöfðingjum Rússlands á mánudaginn þegar einn þeirra sést skoða teikningar af vopninu. Yfirvöld og fjölmiðillinn segja birtinguna hafa verið mistök. Sérfræðingar eru þó ekki sammála. Um er að ræða tundurskeyti sem útbúið væri 100 megatonna kjarnorkuvopni. Í raun má segja að um smáan sjálfsstýrðan kafbát sé að ræða, sem flytja þyrfti á baki annars kafbátar. Á teikningunum segir að tilgangur vopnsins sé að sprengja það við strandlengju óvinar og þannig gera stórt svæði óbyggilegt vegna geislavirkni. Þar að auki myndi sprengingin skapa stærðarinnar flóðbylgju.Samkvæmt BBC segja sérfræðingar sem rússneskir fjölmiðlar hafa rætt við að myndin hafi ef til vill verið birt með ásettu ráði. Miklar deilur standa nú yfir á milli Rússa og Vesturveldanna vegna eldflaugavarnakerfis sem Bandaríkin ætla að reisa í Austur-Evrópu. Rússar segja að kerfinu sé ætlað að gera út af við kjarnorkuburði Rússlands. Putin tilkynnti í júní að Rússar ætluðu að byggja rúmlega 40 ný kjarnorkuvopna á þessu ári. Birtingin í dag er af mörgum talin vera liður í þessum deilum. Hundrað megatonn er gífurlega mikið. Stærsta kjarnorkusprengja sem hefur verið sprengd var „Tsar Bomba“ sem Sovétríkin sprengdu árið 1961. Hún var 58 megatonn. Samkvæmt sérfræðingum sem BBC ræddi við myndi sprenging þessa vopns undan ströndum Bandaríkjanna valda gífurlegu tjóni. Sprengingin gæti skapað allt að 500 metra háa flóðbylgju sem færi um 1.500 kílómetra inn á land. Þá myndi sprengingin gera stór svæði geislavirk.
Mest lesið Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Erlent Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Innlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Milton safnar aftur krafti Erlent Fleiri fréttir Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Sjá meira