Hlaut 40 ára fangelsisdóm fyrir að skipuleggja sprengjuárásir Bjarki Ármannsson skrifar 24. nóvember 2015 23:30 Hinn 29 ára Abid Nasír er meðal annars talinn hafa skipulagt árásir í New York og Kaupmannahöfn.
Pakistanskur karlmaður hlaut í dag fjörutíu ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum fyrir að skipuleggja sprengjuárásir í nokkrum löndum. Bandarísk yfirvöld segja að áform hans hafi verið skipulögð af leiðtogum al-Kaída samtakanna. Hinn 29 ára Abid Nasír var handtekinn í Bretlandi árið 2009 ásamt ellefu öðrum en þeir voru grunaðir um að skipuleggja sprengjuárás á verslunarmiðstöð í Manchester. Hann var aftur handtekinn árið 2010 og framseldur til Bandaríkjanna þremur árum síðar að beiðni bandarískra yfirvalda. Saksóknarar þar í landi töldu Nasír eiga þátt í skipulagningu árása al-Kaída á nokkur skotmörk á Vesturlöndum, meðal annars neðanjarðarlestakerfi New York-borgar og skrifstofur dagblaðs í Kaupmannahöfn. Nasír hélt uppi eigin málsvörn í réttarhöldunum yfir sér en ráðgjafar hans segjast ætla að áfrýja dómnum. Þeir telji dóminn of þungan en einnig að það hefði átt að rétta yfir Nasír í Bretlandi. Það hafi ekki verið sanngjarnt að láta hann koma fram fyrir kviðdómi í New York-borg, þar sem hryðjuverkaárásirnar þann 11. september árið 2001 séu mörgum þar enn í fersku minni. Saksóknarar í málinu eru aftur á móti hæstánægðir með dóminn og segjast vona að hann sendi þau skilaboð að hryðjuverkamönnum verði refsað af fullum þunga.
Mest lesið Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Milton safnar aftur krafti Erlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Innlent Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Erlent Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Innlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sjá meira