Sport

Kolbeinn Höður í FH

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kolbeinn Höður hleypur fyrir FH næstu árin.
Kolbeinn Höður hleypur fyrir FH næstu árin. vísir/daníel
Spretthlauparinn Kolbeinn Höður Gunnarsson er genginn í raðir FH en hann skrifaði undir samning við félagið í Kaplakrika í gær. Þetta kemur fram á mbl.is.

Kolbeinn, sem er tvítugur Akureyringur, keppti áður með UFA en hann mun nú flytjast í bæinn og keppa fyrir FH næstu árin.

Kolbeinn er einn af efnilegustu frjálsíþróttamönnum landsins en hann á Íslandsmet í 200 og 400 metra hlaupi innanhúss. Bæði metin setti hann á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×