Menning

Gefur nýja sýn á nærumhverfið

Magnús Guðmundsson skrifar
Hljóðganga verður við Hallgrímskirkju í hádeginu í dag og á morgun.
Hljóðganga verður við Hallgrímskirkju í hádeginu í dag og á morgun.
Í hádeginu kl. 12 í dag og á morgun er skemmtilegur listviðburður við Hallgrímskirkju. Engram er hljóðganga, þar sem umhverfi og þátttakandi leika aðalhlutverkið. Þetta er stund til þess að beina sjónum að eigin lífi og því sem við teljum sjálfgefið.

Thomas Rajnai og Jens Nielsen mynda hið ósýnilega leikhús eða Osynliga Teatern. Verk þeirra eru þverfagleg og tilraunakennd og tengja saman ólík form sviðslistar sem og áhorfanda og flytjanda. Verkefnin taka á sig það form sem flytur söguna best hverju sinni og eru ávallt í tengslum við umhverfið og ímyndunarafl áhorfenda. Þeir leitast við að gefa áhorfendum nýja sýn á nærumhverfi sitt og mynda nýjar tengingar við staði og byggingar sem tilheyra þeirra daglega lífi.

Hljóðgangan Engram fer fram í Hallgrímskirkju og umhverfis hana. Frá því augnabliki þegar áhorfendur stíga inn í kirkjuna verða þeir hluti af leikverkinu sjálfu og umhverfinu. Undirleikur verksins breytir borgarlandslaginu í svið kvikmyndar, þar sem þátttakandinn er sjálfur aðalleikarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.